Iða við bryggju á vetrarkveldi

1432. Iða ÞH 321 ex Von ÞH 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þessa mynd af Iðu ÞH 321 tók ég sl. sunnudagskvöld þegar rofaði til eftir norðanhríð síðustu daga. Iða hét áður Von ÞH 54 og var smíðuð í Neskaupstað árið 1975. Báturinn er  6 brl. að stærð og hét upphaflega Þórey NK 13.  Síðan … Halda áfram að lesa Iða við bryggju á vetrarkveldi

Máni ÞH 98

1920. Máni ÞH 98 ex Máni EA 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Máni ÞH 98 var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1988 og hét upphaflega Þjóðólfur ÍS 86 og var lengi af gerður út frá Bolungarvík. Þjóðólfur var síðan gerður út frá Suðurnesjum undir þrem nöfnum, fyrst Gefjun KE 19, síðan Þorbjörn GK 109 og Máni … Halda áfram að lesa Máni ÞH 98

Vésteinn GK 88

2908. Vésteinn GK 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Vésteinn GK 88 bættist í flota Einhamars í Grindavík snemma á þess ári en fyrir gerði fyrirtækið út Auði Vésteins SU 88 og Gísla Súrsson GK 8.  Bátarnir eru allir smíðaðir hjá Trefjum í Hafnarfirði af gerðinni Cleopatra 50. Búnir línubeitningarvélum. Þeir eru tæplega 30 brúttótonn og … Halda áfram að lesa Vésteinn GK 88

Eskey ÓF 80

2905. Eskey ÓF 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þessi mynd er síðan 19. ágúst sl. þegar línubáturinn Eskey ÓF 80 kom til hafnar á Siglufirði. Eskey var sjósett á Siglufirði í aprílmánuði 2016 en hún var smíðuð hjá Siglufjarðar-Seig fyrir Akraberg ehf.  Skrokkur Eskeyjar var smíðaður hjá Seiglu á Akureyri og var 11 metra langur … Halda áfram að lesa Eskey ÓF 80