Valdís ÍS 889

7485. Valdís ÍS 889 ex Jóhannes á Ökrum AK 180. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Handfærabáturinn Valdís ÍS 889 frá Suðureyri kemur hér að landi í Grindavík á dögunum. Valdís, sem er 6 brl. að stærð, var smíðuð í Bátastöðinni Knörr ehf, á Akranesi árið 1999. Báturinn var smíðaður fyrir Bjarna Jóhannesson á Akranesi og fékk … Halda áfram að lesa Valdís ÍS 889

Sigurbjörg ÞH 62

739. Sigurbjörg ÞH 62. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurbjörg ÞH 62 var smíðuð á Akureyri árið 1959 fyrir Björgvin Pálsson, Jóhannes Jóhannesson, Hall Jóhannesson og Guðlaug Jóhannesson Flatey á Skjálfanda. Um smíði hans má lesa á aba.is Sigurbjörg var 10 brl. að stærð með 52 hestafla Petters díselvél. 1965 var sett í hann Perkins díselvél. Báturinn var … Halda áfram að lesa Sigurbjörg ÞH 62

Bjargfugl RE 55

6474. Bjargfugl RE 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Grásleppubáturinn Bjargfugl RE 55 kemur hér til hafnar í Reykjavík en hann er gerður út af samnefndu fyrirtæki. Plastgerðin sf. í Kópavogi smíðaði bátinn fyrir Kjartan Kjartansson árið 1982 og hefur hann alla tíð borið sama nafn. Báturinn var lengdur árið 1996 og mælist 8 brl. að … Halda áfram að lesa Bjargfugl RE 55

Jón Pétur RE 411

2033. Jón Pétur RE 411. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Jón Pétur RE 411 kemur hér til hafnar í Reykjavík í gær en báturinn er á grásleppuveiðum þessa dagana. Jón Pétur var smíðaður fyrir Ólaf Eggert Pétursson hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1987. Báturinn var lengdur tíu árum síðar og mælist 10,42 brl.. að stærð. Með … Halda áfram að lesa Jón Pétur RE 411

Manni ÞH 81

1515. Manni ÞH 81 ex Sigurfari ÍS 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Manna ÞH 81 frá Þórshöfn þar sem hann stendur uppi við slippinn á Húsavík. Manni hét upphaflega Kópur ÍS 10 og var smíðaður árið 1978 af Baldri Halldórssyni bátasmið á Hlíðarenda við Akureyri. Hans fyrsta heimahöfn var Suðureyri við Súgandafjörð … Halda áfram að lesa Manni ÞH 81