Friðfinnur ÍS 105

2710. Friðfinnur ÍS 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Friðfinnur ÍS 105 kemur hér að landi á Dalvík haustið 2007 en þangað hafði báturinn verið keyptur frá Flateyri. Báturinn var smíðaður hjá Trefjum og afhentur útgerðarfyrirtækinu Friðfinni ehf. í janúarmánuði árið 2006. Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 38, var seldur til Dalvíkur árið 2007 þar … Halda áfram að lesa Friðfinnur ÍS 105 →

Hafdís ÞH 12

5434. Hafdís ÞH 12. Ljósmynd Sigurgeir Smári Harðarson. Ætla má að það sé um hálf öld síðan Geiri Harðar tók þessa mynd af Hafdísi ÞH 12 á Skjálfanda. Baldur Pálsson bátasmiður á Húsavík smíðaði Hafdísi ÞH 12 fyrir Jóstein Finnbogason árið 1951 og var hún sveinstykki Baldurs í bátasmíðinni. Hafdís var smíðuð úr furu og eik, … Halda áfram að lesa Hafdís ÞH 12 →

Kvistur KÓ 30

7395. Kvistur KÓ 30 ex Kvistur ÍS 131. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Kvistur KÓ 30 hét upphaflega Þengill ÞH 34 og átti heimahöfn á Húsavík. Smíðaður hjá Trefjum árið 1991. Árið 1995 fékk báturinn nafnið Gyða Jónsdóttir EA 208 með heimahöfn í Grímsey og sjö árum síðar var nafninu breytt í Gísli bátur EA 208. … Halda áfram að lesa Kvistur KÓ 30 →