
Bjarmi EA 112 kemur hér að landi á Dalvík sumarið 2009 en hann upphaflega hét báturinn Bylgja RE 77 og var smíðaður hjá Seiglu ehf. í Reykjavík árið 2003.
Árið 2004 fær hann nafnið Greifinn SK 19 með heimahöfn á Sauðárkróki. 2006 er hann orðinn GK 103 með heimahöfn í Garðinum.
Árið síðar fær hann nafnið Demus GK 212 með heimahöfn í Grindavík.
Það var svo árið sem þessi mynd var tekin sem báturinn fékk nafnið Bjarmi EA 112 sem hann bar til ársins 2012.
Þá var hann seldur til Grímseyjar þar sem hann fékk nafnið Konráð EA 90 en í janúarmánuði 2024 fékk báturinn nafnið Þorsteinn VE 18 sem hann ber enn þann dag í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution