
Friðfinnur ÍS 105 kemur hér að landi á Dalvík haustið 2007 en þangað hafði báturinn verið keyptur frá Flateyri.
Báturinn var smíðaður hjá Trefjum og afhentur útgerðarfyrirtækinu Friðfinni ehf. í janúarmánuði árið 2006.
Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 38, var seldur til Dalvíkur árið 2007 þar sem hann fékk nafnið Bliki EA 12. EA 12 var hann til ársins 2011 að hann varð EA 30 og síðan 2012 Bliki ÍS 203.
Báturinn fékk síðla árs 2018 nafnið Straumey ÍS 203, ári síðar Straumey HF 200 og sama ár Straumey EA 50 með heimahöfn í Hrísey.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution