Árni Friðriksson í Hafnarfirði

2350. Árni Friðrikson RE 200 við bryggju í Hafnarfirði. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson RE 200 lagðist að bryggju og mátaði sig við framtíðaraðstöðu Hafrannsóknarstofnunar í Hafnarfirði. Magnús Jónsson tók þessar myndir í dag og sendi síðunni. 2350. Árni Friðrikson RE 200 við bryggju í Hafnarfirði. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Með því að … Halda áfram að lesa Árni Friðriksson í Hafnarfirði →

V/S Þór á Skjálfanda sumarið 2012

2769. Varðskipið Þór á Skjálfanda 21. ágúst 2012. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Varðskipið Þór kom í fyrsta skipti til Húsavíkur þann 21. ágúst árið 2012 og voru þessar myndir teknar á Skjálfanda þann dag. Varðskipið Þór, sem er flaggskip Landhelgisgæslunnar, var smíðað í ASMAR skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile og kom það til heimahafnar í Reykjavík … Halda áfram að lesa V/S Þór á Skjálfanda sumarið 2012 →

Týr við Grindavík á dögunum

1421. Týr úti fyrir Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir af varðskipinu Tý á dögunum er skipið var statt úti fyrir Grindavík. Týr var smíðaður í Aarhus Flydedok A/S í Danmörku árið 1975 en hér má lesa fróðleik um skipið. Varðskipið Týr úti fyrir Grindavík. Ljósmyndir Jón Steinar 2019. Með því … Halda áfram að lesa Týr við Grindavík á dögunum →

Snæfugl SU 20 á Eyjafirði um árið

1020. Snæfugl SU 20 ex Guðmundur Ólafur II ÓF 40. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Þessar myndir af Snæfugli SU 20 tók ég í ágústmánuði 2003 en skipið hafði verið að taka fisk úr kvíum neðan Víkurskarðs fyrr um daginn. 1020. Snæfugl SU 20 ex Guðmundur Ólafur II ÓF 40. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Upphaflega hét … Halda áfram að lesa Snæfugl SU 20 á Eyjafirði um árið →

Rembrandt van Rijn kom til Húsavíkur

Rembrandt van Rijn á Skjálfandaflóa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska seglskipið Rembrandt van Rijn kom til hafnar á Húsavík nú undir kvöld en skipið hefur komið hingað undanfarin haust. Skipið er þriggja mastra skonnorta smíðuð 1924 sem fiskiskip og hét upphaflega Jakoba. Snemma á níunda áratug síðustu aldar var því breytt til siglinga með farþega og siglir … Halda áfram að lesa Rembrandt van Rijn kom til Húsavíkur →

Solundoy á útleið frá Grindavík

IMO 9158654. Solundoy ex Øystrand. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar tók þessar myndir á dögunum þegar írksi brunnbáturinn Solundoy lét úr höfn í Grindavík. Báturinn var smíðaður árið 1997 hjá Aas Mek Verksted AS í Vestnes í Noregi. Hann er 30,6 metrar að lengd og 7,5 metra breiður. Mælist 265 brúttótonn að stærð.Hét Øystrand … Halda áfram að lesa Solundoy á útleið frá Grindavík →

Sæbjörg ST 7

1054. Sæbjörg ST 7 ex Júlíus Ár 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæbjörg ST 7 kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en bátar Strandamanna sem stunduðu úthafsrækjuveiðar áttu það til að koma og landa á Húsavík þaðan sem aflinn var keyrður vestur til vinnslu. Báturinn var smíðaður hjá Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi … Halda áfram að lesa Sæbjörg ST 7 →

Dagmar Aaen á Skjálfanda 2011

Dagmar Aaen á Sail Húsavík 2011. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ég las viðtal við þýska heimskautafarann og landkönnuðurinn Arved Fuchs í Fiskifréttum í morgun. Það rifjaði upp skemmtilegan dag á Skjálfandaflóa í júlímánuði 2011. Þá stóð yfir siglingahátíðin Sail Húsavík 2011 og þennan dag var m.a kappsigling seglskipa á dagskránni. Myndin af ofan er ein fjölmargra mynda … Halda áfram að lesa Dagmar Aaen á Skjálfanda 2011 →

Alvarez Rosales og A Gago koma að landi

Alvarez Rosales kemur að landi í Chapela. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Vinnubátarnir sem notaðir eru við skelræktina á Vigoflóa eru margir og af ýmsum stærðum og gerðum. Í hádeginu komu tveir þeirra til hafnar í Chapela og sýnist mér þetta vera flaggskipin þeirra hér í bæ. Bátarnir heita Alvarez Rosales og A Gago og tók … Halda áfram að lesa Alvarez Rosales og A Gago koma að landi →