Sigurður VE 15

2883. Sigurður VE 15. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Jón Steinar tók þessa mynd af loðnuskipinu Sigurði VE 15 á dögunum þar sem það var á leið fyrir Reykjanesið. Ísfélag Vestmannaeyja lét smíða Sigurð VE 15 í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi og kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum sumarið 2014. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Sigurður VE 15 →

Albert á toginu

1046. Albert GK 31 ex Birtingur NK 119. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Albert GK 31 frá Grindavík togar hér á rækjuslóðinni um árið og ekki er brælunni fyrir að fara. Báturinn hét upphaflega Birtingur NK 119 og smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrik Verksted A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1967 fyrir Síldarvinnsluna h/f í Neskaupstað … Halda áfram að lesa Albert á toginu →

Gísli Árni RE 375

1002. Gísli Árni RE 375. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Gísli Árni RE 375 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni árið 1982. Gísli Árni var smíðaður fyrir Sjóla hf. í Reykjavík í Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi árið 1966. Að Sjóla hf. stóðu Einar Árnason og Eggert Gíslason skipstjóri. Eggert eignaðist síðar … Halda áfram að lesa Gísli Árni RE 375 →

Lerkur Rókur og Vilhelm Þorsteinsson

Lerkur FD 206, Rókur FD 205 og Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér liggja við Oddeyrarbryggjuna færeysku togskipin Lerkur FD 206 og Rókur FD 205 ásamt Vilhelm Þorsteinssyni EA 11. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Lerkur Rókur og Vilhelm Þorsteinsson →

Dagfari GK 70

1037. Dagfari GK 70 ex Dagfari ÞH 70. Ljósmynd Baldur Sigurgeirsson. Dagfari GK 70 er hér á loðnumiðunum um árið en myndina tók Baldur Sigurgeirsson vélstjóri. Dagfari var smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi.  Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. Árið 1977 er skráður eigandi Útgerðarfélagið Njörður … Halda áfram að lesa Dagfari GK 70 →

Víkingur á Skjálfanda

2882. Víkingur Ak 100. Ljósmynd Christian Schmidt 2021. Christian Schmidt leiðsögumaður hjá Norðursiglingu tók þessa myndir af Víkingi AK 100 í morgun. 2882. Víkingur Ak 100. Ljósmynd Christian Schmidt 2021. Víkingur og systurskip hans Venus NS 150 hafa verið á Skjálfandaflóa, framundan Húsavíkurhöfða og nágrenni, síðan í nótt. Ætli það sé ekki bræla á loðnumiðunum. … Halda áfram að lesa Víkingur á Skjálfanda →