Nýtt Hoffell væntanlegt

IMO 9414709. Asbjørn HG-265 ex Gitte Henning. Ljósmynd Högni Páll Harðarson 2022. Í gær var skrifað formlega undir kaup LVF á uppsjávarskipinu Asbjørn HG-265 frá Danmörku og sölu á Hoffelli. Frá þessu er greint á Fésbókarsíðu Loðnuvinnslunnar. Bæði skipin eru komin í slipp í Noregi. Asbjørn er 14 ára gamalt, 9 árum yngra en Hoffell. … Halda áfram að lesa Nýtt Hoffell væntanlegt

Guðrún Þorkelsdóttir SU 211

1076. Guðrún Þorkelsdóttir SU 211 ex Helga Guðmundsdóttir BA 77. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Hér koma myndir af Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211 við rækjuveiðar fyrir margt löngu síðan. Upphaflega Helga Guðmundsdóttir BA 77, smíðuð í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi. Hún var smíðuð fyrir Vesturröst hf. á Patreksfirði og kom ný til heimahafnar 9. mars … Halda áfram að lesa Guðrún Þorkelsdóttir SU 211

Beitir á rækjuveiðum

226. Beitir NK 123 ex Óli Óskars RE 175. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Beitir NK 123 frá Neskaupstað er hér að rækjuveiðum um árið en það var Síldarvinnslan hf. sem gerði hann út. Beitir NK 123 hét áður Óli Óskars og var smíðaður í Vestur-Þýskalandi árið 1958. Hann hét upphaflega Þormóður goði og var í fyrstu … Halda áfram að lesa Beitir á rækjuveiðum

Barði NK 120

2865. Barði NK 120 ex Börkur II NK 122. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2022. Skip Síldarvinnslunnar, Barði NK 120, sést hér yfirgefa Akureyri á dögunum en þar var skipið í slipp. Fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar í dag að nú þegar kolmunnaveiðum er lokið í bili eru uppsjávarskip Síldarvinnslunnar undirbúin fyrir makrílvertíð sem gert er ráð … Halda áfram að lesa Barði NK 120

Grindvíkingur

1512. Grindvíkingur GK 606. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson 1994. Þessa myndasyrpu af Grindvíkingi GK 606 tók Olgeir Sigurðsson árið 1994 skipið var gert út af Fiskanesi í Grindavík. Hér má lesa nánar um Grindvíking GK 606 en hann var smíðaður árið 1978. 1512. Grindvíkingur GK 606. Ljósmyndir Olgeir Sigurðsson 1994. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Grindvíkingur

Björg Jónsdóttir ÞH 321

1508. Björg Jónsdóttir ÞH 321 Höfðavík AK 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Björg Jónsdóttir ÞH 321 hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 og var skipið smíðað í Slippstöðinni á Akureyri árið 1978. Þegar Langanes hf. keypti skipið frá Akranesi árið 1996 bar það nafnið Höfðavík AK 200 en fékk nafnið Björg Jónsdóttir ÞH 321. Björg … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321

Hoffellið á Skjálfanda

2885. Hoffell SU 80 ex Smaragd. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Í þessum skrifuðu orðum er uppsjávarveiðiskip Fáskrúðsfirðinga, Hoffell SU 80, að sigla um Skjálfandaflóa, sennilega að svipast um eftir loðnu. Þessi mynd er tekin á Húsavíkurhöfða og Hoffellið á leið inn flóann með Flatey í baksýn. Hoffell SU 80, sem áður hét Smaragd, er smíðað … Halda áfram að lesa Hoffellið á Skjálfanda

Bjarni Ólafsson AK 70

2909. Bjarni Ólafsson AK 70 ex Fiskeskjer. Ljósmynd Þór Jónsson 2022. Loðnuskipið Bjarni Ólafsson AK 70 kemur hér að landi í Neskaupstað í gær en myndina tók Þór Jónsson á Djúpavogi. Skipið var keypt til landsins frá Noregi árið 2015 en það var smíðað árið 1999 og hét áður Fiskeskjer. Eigandi skipsins er Síldarvinnslan hf. … Halda áfram að lesa Bjarni Ólafsson AK 70

Sigurður VE 15

2883. Sigurður VE 15. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Jón Steinar tók þessa mynd af loðnuskipinu Sigurði VE 15 á dögunum þar sem það var á leið fyrir Reykjanesið. Ísfélag Vestmannaeyja lét smíða Sigurð VE 15 í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi og kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum sumarið 2014. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Sigurður VE 15