FISK Seafood kaupir 60 % hlut í Steinunni SH 167

1134. Steinunn SH 167 ex Ingibjörg RE 10. Ljósmynd Alfons Finnsson 2020. Gengið hefur verið frá samkomulagi um kaup FISK Seafood ehf., í gegnum dótturfélag sitt, á 60% eignarhlut í útgerðarfélaginu Steinunni hf. í Ólafsvík sem gert hefur út vertíðarbátinn Steinunni SH-167. Fimm bræður og fjölskyldur þeirra hafa rekið félagið í u.þ.b. hálfa öld. Eftir kaupin … Halda áfram að lesa FISK Seafood kaupir 60 % hlut í Steinunni SH 167 →

Breytingar á skipastól Síldarvinnslunnar

2677. Bergur VE 44 ex Brodd 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2021. Bergur ehf. í Vestmannaeyjum hefur samþykkt sölu á Berg VE 44 til Vísis í Grindavík. Skipið verður afhent nýjum eigendum í ágúst á þessu ári.  Í tilkynningu á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að Bergur er með tæplega 1600 þorskígildi, en skipið er selt án aflaheimilda. … Halda áfram að lesa Breytingar á skipastól Síldarvinnslunnar →

Blængur landar úr fyrstu veiðiferð ársins

1345. Blængur NK 125 ex Freri RE 73. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Frystitogarinn Blængur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í gær að lokinni fyrstu veiðiferð ársins. Skipið hélt til veiða 4. febrúar en það hafði verið í slipp á Akureyri frá því í desember. Aflinn í veiðiferðinni var 471 tonn upp úr sjó að … Halda áfram að lesa Blængur landar úr fyrstu veiðiferð ársins →

Vinnslustöðin hf. kaupir útgerðarfyrirtækið Hugin í Vestmannaeyjum

2411. Huginn VE 55. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Vinnslustöðin hf. hefur keypt Huginn ehf., útgerðarfélag í Vestmannaeyjum sem gerir út fjölveiðiskipið Hugin VE-55, ásamt aflaheimildum í síld, loðnu, kolmunna og makríl. Kaupsamningur var undirritaður í Eyjum á föstudaginn var, 29. janúar. Kaupverðið er trúnaðarmál kaupenda og seljenda. Vinnslustöðin átti fyrir 48% hlut í Hugin en … Halda áfram að lesa Vinnslustöðin hf. kaupir útgerðarfyrirtækið Hugin í Vestmannaeyjum →

Björgum Blátindi

Ályktun stjórnar Sambands íslenskra sjóminjasafna um Blátind VE 21 347. Blátindur VE 21. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Stjórn Sambands íslenskra sjóminjasafna tekur heilshugar undir með Hollvinafélögum Húna II á Akureyri og Magna í Reykjavík að skora á framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja að falla frá samþykkt um að farga bátnum Blátindi VE 21. Vestmannaeyjar hafa verið ein … Halda áfram að lesa Björgum Blátindi →

Nýr Einar Guðnason ÍS 303 til Suðureyrar

2997. Einar Guðnason ÍS 303. Ljósmynd Trefjar 2021. Útgerðarfélagið Norðureyri ehf. á Suðureyri fékk í síðustu viku afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 beitningavélarbát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Íslandssaga ehf. tekur við afla bátsins og er einn eigandi Norðureyrar. Framkvæmdastjóri Íslandsögu ehf. er Óðinn Gestsson. Báturinn heitir Einar Guðnason ÍS 303 og er 15 metrar … Halda áfram að lesa Nýr Einar Guðnason ÍS 303 til Suðureyrar →

FISK Seafood kaupir útgerðarfélagið Ölduós

2718. Dögg SU 118 ex Dögg SF 18. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2019. Gengið hefur verið frá samningi um kaup FISK Seafood á útgerðarfélaginu Ölduósi ehf. á Höfn í Hornafirði og um leið á krókaaflamarksbáti félagsins, Dögg SU 118.  Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynningu frá FISK Seafood segir að aflaheimildir Daggar … Halda áfram að lesa FISK Seafood kaupir útgerðarfélagið Ölduós →

Vinna við nýja Börk á áætlun

2983. Börkur NK 122. Ljósmynd Karl Jóhann Birgisson 2020. Þeir Karl Jóhann Birgisson og Jóhann Pétur Gíslason vélstjóri hafa dvalið í Skagen í Danmörku í tvo og hálfan mánuð þar sem þeir hafa fylgst með framkvæmdum um borð í nýjum Berki sem er í smíðum hjá Karstensens Skibsværft. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að þeir félagar … Halda áfram að lesa Vinna við nýja Börk á áætlun →

Tveimur árum og 1470 færslum síðar

Við Húsavíkurhöfn í gærkveldi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Í dag eru tvö ár síðan þessi síða fór í loftið eftir að ég hóf að fikta við að búa hana til einhverjum dögum áður. Þessi færsla er númer 1470 sem gera rúmlega tvær færslur á dag í þessi tvö ár. Þetta væri ógerlegt nema fyrir góðvild manna … Halda áfram að lesa Tveimur árum og 1470 færslum síðar →

Þórsberg ehf. gerir samning um kaup á Grábrók ehf. af Brimi hf.

2766. Steinunn HF 108 ex Benni SU 65. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Forsvarsmenn Þórsbergs ehf. á Tálknafirði, sem gerir út bátinn Indriða Kristins BA 751 (2947) í krókaaflamarskerfinu, sem er með um 1.250 þorskígildistonn af krókaaflamarksheimildum, hafa gert samning við Brim hf. um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Grábrók ehf. Grábrók ehf. hefur gert … Halda áfram að lesa Þórsberg ehf. gerir samning um kaup á Grábrók ehf. af Brimi hf. →