IMO 8705838. Tasermiut GR 6-395 ex Labrador Storm. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Grænlenski rækjutogarinn Tasermiut GR 6-395 er hér á siglingu í Meðallandsbugtinni síðdegis í dag. Togarinn var smíðaður í Langsten Slip & Båtbyggeri AS í Noregi árið 1988. Hann er 75,90 metrar að lengd, 13 metra breiður og mælist 2,590 GT að stærð. Samkvæmt … Halda áfram að lesa Tasermiut GR 6-395 á siglingu
Flokkur: Erlend fiskiskip
Avataq GR 6-19
Avataq GR 6-19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þessa mynd af grænlenska togaranum Avataq GR 6-19 tók ég í dag en skipið er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni í Astilleros de Murueta í Bilbao á Spáni. Avataq GR 6-19 er annar tveggja frystitogara sem stöðin smíðar fyrir Royal Greenland en sá fyrri, Sisimiut GR 6-18, var afhentur … Halda áfram að lesa Avataq GR 6-19
Ocean Tiger R 38
IMO 9136383. Ocean Tiger R 38. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Danski rækjutogarinn Ocean Tiger R 38 er hér að rækjuveiðum á Svalbarðasvæðinu á dögunum. Togarinn, sem er í eigu Ocean Prawn A/S, var smíðaður árið 1997 í Noregi og er með heimahöfn í Nexø. Hann er 60 metrar að lengd og 14 metra breiður. Mælist … Halda áfram að lesa Ocean Tiger R 38
Ole-Arvid á toginu
IMO 9216949. Ole-Arvid Nergård T-5H ex Rosvik. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Norski frystitogarinn Ole-Arvid Nergård T-5-H er hér við rækjuveiðar á Svalbarðasvæðinu en myndina tók Eiríkur Sigurðsson á dögunum. Ole-Arvid hét áður Rosvik og er í eigu Nergård Havfiske AS, heimahöfn hans er Harstad. Togarinn var smíðaður árið 2001 í Aas Mekaniske Verksted AS í … Halda áfram að lesa Ole-Arvid á toginu
Lokys að veiðum á Svalbarðasvæðinu
IMO:9226736. Lokys LK 926 ex Qaqqatsiaq. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Rækjutogarinn Lokys LK 926 er hér að veiðum á Svalbarasvæðinu í vikunni en eins og komið hefur fram á síðunni keypti útgerðarfyrirtækið Reyktal hann frá Grænlandi í vor. Togarinn, sem hét áður Qaqqatsiaq, hét upphaflega Steffen C GR-6-22 og var smíðaður árið 2001. Hann er 60 … Halda áfram að lesa Lokys að veiðum á Svalbarðasvæðinu
Merike á miðunum
IMO 9227534. Merike EK 1802 ex Regina C. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Rækjutogarinn Merike EK 1802 öslar hér í átt að Reval Viking hvar Eiríkur Sigurðsson er skipstjóri en hann tók þessar myndir á dögunum. Skipin voru við rækjuveiðar á Svalbarðasvæðinu en bæði eru þau í eigu útgerðafyrir-tækisins Reyktal. IMO 9227534. Merike EK 1802 ex … Halda áfram að lesa Merike á miðunum
Granit á veiðislóðinni
IMO 9796896. Granit H-11-AV. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Hann er glæsilegur norski frystitogarinn Granit H-11-AV sem Eiríkur Sigurðsson myndaði við veiðar á Svalbarðasvæðinu í fyrradag. Hann var smíðaður fyrir Halstensen Granit AS í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi og afhentur í september árið 2017. Granit er 81,20 metrar að lengd, 16,60 metra breiður og mælist 4,427 GT … Halda áfram að lesa Granit á veiðislóðinni
Nordtind við veiðar á Svalbarðasvæðinu í gær
IMO 9804538. Nordtind N-6-VV. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Frystitogarinn Nordtind N-6-VV er hér á rækjuveiðum á Svalbarðasvæðinu í gær. Myndina tók Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking og voru þeir að veiðum um 100 sml. austur af Hopen. Nordtind er í eigu norsku stórútgerðarinnar Havfisk AS og hóf veiðar árið 2018. Togarinn var afhentur frá … Halda áfram að lesa Nordtind við veiðar á Svalbarðasvæðinu í gær
Dorado 2 á toginu
IMO: 8817540. Dorado 2 LVL 2158 ex Newfound Pioneer. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2019. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking sendi síðunni þessar myndir af frystitogaranum Dorado 2. Myndina tók hann fyrir helgi þar sem þeir voru að veiðum í Smugunni. Togarinn hét áður Nefound Pioneer frá Kanada en skipti um eigendur í vor og er … Halda áfram að lesa Dorado 2 á toginu
Atlantic Challange í flotkví á Spáni
IMO:9213442. Atlantic Challange D 642. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Írska uppsjávarveiðiskipið Atlantic Challange D 642 er í flotkvínni í Teis sem er rétt innan við Vigo. Skipið, sem er með heimahöfn í Dublin, var smíðað árið 1999 í Eidsvik Skipsbyggeri AS í Uskedalen í Noregi. Það er 59 metrar að lengd, 14,53 metrar á breidd … Halda áfram að lesa Atlantic Challange í flotkví á Spáni









