IMO 9221542. Argelés LO 932355 ex Nuevo Nemesia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Franski togarinn Argelés frá Lorient lá við bryggju í Vigo í gær. Togarinn var smíðaður árið 2000 og hét áður Nuevo Nemesia, hann er 34 metrar að lengd og 8 metra breiður. Mælist 393 GT að stærð. Heimahöfn hans er eins og áður … Halda áfram að lesa Argelés við bryggju í Vigo
Flokkur: Erlend fiskiskip
Tuneq kom til Hafnarfjarðar í gær
1903. Tuneq GR 6-40 ex Þorsteinn ÞH 360. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Óskar Franz tók þessa mynd af grænlenska uppsjávarveiðiskipinu Tuneq GR 6-40 koma til Hafnarfjarðar í gær. Tuneq GR 6-40 hét upphaflega Helga II RE 373 og var smíðuð í Ulsteinvik í Noregi árið 1988 fyrir Ingimund hf. í Reykjavík. Síðar Þorsteinn EA 810 … Halda áfram að lesa Tuneq kom til Hafnarfjarðar í gær
Ontika kom til Hafnarfjarðar í dag
Ontika KL 913 ex Orri ÍS 20. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Óskar Franz tók þessa mynd af skuttogaranum Ontika L 913 koma til Hafnarfjarðar í dag. Togarinn var að koma úr síðustu veiðiferðinni fyrir útgerðarfyrirtækið Reyktal en Lokys KL 926 mun leysa hann af hólmi. Ontika hefur verið seldur til Lettlands. Togarinn, sem hét upphaflega … Halda áfram að lesa Ontika kom til Hafnarfjarðar í dag
Þeir fiska sem róa
Fiskibátur að veiðum úti fyrir Vigoflóa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þeir eru fjölmargir fiskibátarnir hér við strendur Galisíu og hér er einn þeirra að veiðum rétt innan Cíeseyja í mynni Vigoflóans. Hann er á nótaveiðum en hvað hann er að veiða er mér ekki kunnugt um. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Þeir fiska sem róa
Stapin á Vopnafirði
OW2055. Stapin FD 32 ex Husby Senior M-13-AV. Ljósmynd Börkur Kjartansson 2019. Frændur okkar á línubátnum Stapin FD 32 voru í fréttum í dag þar sem sagði að eftirlitsdróni Landhelgisgæslunnar stóð skipverja að verki við meint ólöglegt brottkast. Bátnum var stefnt til Vopnafjarðar og tók Börkur Kjartansson þessa mynd um hádegisbil þegar Stapin kom að … Halda áfram að lesa Stapin á Vopnafirði
Við bryggju í Teis
Í Teis rétt innan við Vigo. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Næsti bær utan við Chapela við Vigoflóann er Teis og þar eru bryggjur, flotkvíar og slippar. Ég hjólaði þangað um sl. helgi og tók nokkrar myndir og hér koma þrjár þeirra. Þarna er að mér sýnist aðallega unnið að viðgerðum og smíðum á skipum en … Halda áfram að lesa Við bryggju í Teis
Morten Einar H-402-AV
IMO 9205201. Morten Einar H-402-AV ex Odd Lundberg T-260-G. Ljósmynd Baldur Sigurgeirsson 2019. Húsvíkingurinn Baldur Sigurgeirsson starfar sem vélstjóri á norskum dráttarbáti og tók hann þessa mynd af Mortein Einar H-402-AV í Torangsvåg í dag. Morten Einar H-402-AV hét upphaflega Skar Senior og var smíðaður árið 2003 í Aveiro í Portúgal fyrir Norðmenn. Hann er … Halda áfram að lesa Morten Einar H-402-AV
Monte Meixumeiro við bryggju
IMO 9329227. Monte Meixueiro. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Spænski skuttogarinn Monte Meixueiro kom til löndunar í gær og liggur við kajann hér rétt við Chapela. Togarinn var smíðaður árið 2005 og mælist 1,790 GT að stærð. Hann er 63 metra langur og 13 metra breiður. Heimahöfn hans er í Vigo en hann var smíðaður fyriri … Halda áfram að lesa Monte Meixumeiro við bryggju
O Viscaya á útleið
O Viscaya 3VILL51-97. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Við mættum þessum fiskibáti á dögunum þar sem hann var á útleið frá Vigo. O Viscaya heitir hann og einu upplýsingarnar sem ég fann segja að hann sé 19 metrar að lengd og 6 metra breiður.
Nuevo Maresco á siglingu
Nuevo Maresco 3FE45-06. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Fiskibáturinn Nuevo Maresco siglir hér inn eftir Vigoflóanum norðanverðum á leið í gær til hafnar í Vigo. Bátuirnn, sem var smíðaður árið 2006 er 12,7 metra langur. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Nuevo Maresco á siglingu









