1595. Frár VE 78 ex Frigg vE 41. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2022. Hér kemur togbáturinn Frár VE 78 til hafnar í Vestmannaeyjum á dögunum en Tryggvi Sigurðsson tók myndina. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður er út af Frá ehf. í Vestmannaeyjum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Frár VE 78
Flokkur: Bátar
Margrét HF 20
259. Margrét HF 20 ex Margrét SK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Margrét HF 20 kemur hér að landi í Grindavík á vetrarvertíðinni 2009 en hún var þá gerð út af Reddingu ehf. og var með heimahöfn í Sandgerði. Um bátinn má lesa nánar hér en hans síðasta nafn á íslenskri skipaskrá var Nord GK … Halda áfram að lesa Margrét HF 20
Mundi Sæm SF 1
1631. Mundi Sæm SF 1 ex Gæfa SF 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Mundi Sæm SF 1 frá Hornafirði kom norður fyrir land á úthafsrækju sumarið 2003 og hér lætur hann úr höfn á Húsavík. Miðós hf. gerði bátinn út en hann var með heimahöfn á Hornafirði rúman áratug. Báturinn hét upphaflega Fálkinn NS 325 … Halda áfram að lesa Mundi Sæm SF 1
Sæborg og Litlafell
1097. Sæborg ÞH 55 - 1165. Litlafell. Ljósmynd Pétur Jónasson. Hér gefur að líta Sæborgu ÞH 55 koma að landi á Húsavík og í baksýn er Litlafell, olíuskip SÍS og Olíufélagsins hf. að manúera við hafnargarðinn. Um Sæborgina, sem smíðuð var árið 1970 hjá Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri, má lesa hér en Litlafellið … Halda áfram að lesa Sæborg og Litlafell
Saltver kaupir Mars sem fær nafnið Erling
2986. Mars RE 270 ex Sólborg RE 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Saltver í Reykjanesbæ hefur keypt Mars RE 270 af Útgerðarfélagi Reykjavíkur og mun hann leysa netabátinn Erling KE 140 af hólmi. Mars var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1988 og hét áður Sólborg RE 27. Báturinn, sem er 34 metrar … Halda áfram að lesa Saltver kaupir Mars sem fær nafnið Erling
Helgi Fló
93. Helgi Flóventsson ÞH 77. Ljósmynd Pétur Jónasson. Helgi Flóventsson ÞH 77 er hér á heimstími til Húsavíkur á sjöunda áratug síðustu aldar en hann var gerður út af Svan h/f á Húsavík. Báturinn var smíðaður fyrir Svan h/f í Risör í Noregi árið 1962 og kom í stað minni báts sem sökk um 4,5 … Halda áfram að lesa Helgi Fló
Fönix ST 177
177. Fönix ST 177 ex Arnfríður Sigurðardóttir RE 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Fönix ST 177 ku vera á leið utan í pottinn og er hann í slefi aftan í skuttogaranum Klakki ÍS 903 sem bíða sömu örlög. Um Fönix, sem var smíðaður árið 1960 og hét upphaflega Seley SU 10, má lesa nánar hér. … Halda áfram að lesa Fönix ST 177
Örfirisey RE 14
1030. Örfisrisey RE 14. Ljósmynd Pétur Jónason 1967. Pétur Jónasson ljósmyndari á Húsavík tók þessar myndir af Örfirisey RE 14 um árið. Annað hvort í febrúra 1967 þegar hún kom ný til landsins en hún tók fyrst land á Húsavík. Eða þá á Sjómannadeginum sama ár. Um Örfirisey má lesa hér og þar kemur m.a … Halda áfram að lesa Örfirisey RE 14
Guðrún Jónsdóttir SI 155 í slipp
1452. Guðrún Jónsdóttir SI 155 ex Þorleifur EA 88. Ljósmynd Pétur Jónasson. Guðrún Jónsdóttir SI 155 frá Siglufirði er hér í slipp á Húsavík en Pétur Jónasson tók myndina. Báturinn hét upphaflega Hrönnn ÞH 275 frá Raufarhöfn og var smíðaður fyrir Þorgeir Hjaltason í Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri árið 1976. Árið 1982 var báturinn … Halda áfram að lesa Guðrún Jónsdóttir SI 155 í slipp
Skúmur GK 22
1872. Skúmur GK 22. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Skúmur GK 22 sést hér á miðunum um árið en hann var í eigu Fiskaness hf. í Grindavík, smíðaður í Ramvik í Svíþjóð 1987. Skúmur, sem var 242 tonn að stærð, var seldur Hafboða hf. í Hafnarfirði árið 1989 og heimahöfnin varð Hafnarfjörður. Skipið var skráð með heimahöfn … Halda áfram að lesa Skúmur GK 22









