Arney KE 50

1014. Arney KE 50 ex Ársæll Sigurðsson GK 320. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Arney KE 50 leggur hér úr höfn á Húsavík áleiðis austur á firði til síldveiða undir stjórn Húsvíkingsins Óskars Þórhallssonar. Alltaf þótt þetta frekar góð mynd þó ég segi sjálfur frá tekin á fyrstu 35 mm. filmuvélina mína.  Arney hét upphaflega Ársæll … Halda áfram að lesa Arney KE 50

Röst SK 17

1009. Röst SK 17 ex Kristbjörg ÞH 44 . Ljósmynd Christian Schmidt 2012. Christian Schmidt leiðsögumaður hjá Norðursiglingu tók þessa flottu mynd af Röst SK 17 á Skjálfanda um árið. Þetta var nánar tiltekið í byrjun septembermánaðar 2012 og pabbi og Christian í hvalaskoðun á einum báta Norðursiglingar. Kannaðist sá gamli við bátinn enda skipstjóri … Halda áfram að lesa Röst SK 17

Snæbjörg ÍS 43

1436. Snæbjörg ÍS 43 ex Snæbjörg BA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Snæbjörg ÍS 43 var smíðuð í Sandgerði og afhent árið 1975 og hét upphaflega Hamraborg SH 222 frá Grundarfirði. Hamraborg var smíðuð í Vélsmiðjunni Herði h/f fyrir Ásgeir Valdimarsson, sem var skipstjóri, og Víði Jóhannsson í Grundarfirði. Hún var 38 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Snæbjörg ÍS 43

Sveinbjörn Jakobsson SH 10

1054. Sveinbjörn Jakobsson SH 10 ex Sæbjörg ST 7. Ljósmynd Alfons Finnsson. Sveinbjörn Jakobsson SH 10 kemur hér til hafnar í Ólafsvík um árið. Upphaflega Drífa RE 10 smíðuð hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi 1967. Báturinn var endurbyggður í Ósey í Hafnarfirði 1997 og fékk nafnið Sæbjörg ST 7. Hann hafði heitið ýmsum … Halda áfram að lesa Sveinbjörn Jakobsson SH 10

Sighvatur GK 57 á leið í róður

975. Sighvatur GK 57 ex Bjartur. Ljósmynd Jón Steinar 2016. Jón Steinar tók þessa mynd af Sighvati GK 57 þann 31. mars 2016 þegar að hann var að fara út frá Grindavík í suðaustan 25 metrum. Flott mynd af þessum gamla, einum 18 bræðra og systra, sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í Boizenburg á árunum … Halda áfram að lesa Sighvatur GK 57 á leið í róður

Stefán Rögnvaldsson EA 345

616. Stefán Rögnvaldsson EA 345 ex Egil BA 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Stefán Rögnvaldsson EA 345 var  68 brl. að stærð og hét upphaflega Jón Guðmundsson KE 4, hann hét síðan, Ísleifur ÁR, Askur,ÁR, Guðbjörg ST, Laufey ÍS, Dagur SI og Egill BA. Stefán Rögnvaldsson hf. keypti hann frá Patreksfirði 1987. Báturinn var smíðaður í Þýskalandi … Halda áfram að lesa Stefán Rögnvaldsson EA 345