Geir ÞH 150

2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Geir ÞH 150 frá Þórshöfn hefur að mestu stundað dragnótaveiðar auk netaveiða á vetrarvertíð. Sumarið 2013 var Geir þó á rækju og hér sést hann koma til hafnar á Húsavík í júnímánuði það ár. Geir  var smíðaður (skrokkurinn fluttur inn frá Póllandi ) hjá Ósey  í Hafnarfirði árið … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150

Hafborg EA 152 á Húsavík

2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Ekki er um auðugan garð að gresja í bátamyndatökum hér á Húsavík í skammdeginu. Hafborg EA 152 hefur þó verið að róa frá Húsavík að undanförnu og þá freistast maður til að mynda. Hafborg er á dragnótaveiðum og hefur í haust verið sitt á hvað í Eyjafirðinum … Halda áfram að lesa Hafborg EA 152 á Húsavík

Wilson Nice á Húsavík

Wilson Nice. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Flutningaskipið Wilson Nice liggur nú við Bökugarðinn á Húsavík  þar sem uppskipun á hráefni fyrir PCC á Bakka fer fram. Wilson Nice er 123 metra langt og 17 metra breitt, smíðað árið 2010. Skipið, sem siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Valletta, kom einnig til Húsavíkur í sumar … Halda áfram að lesa Wilson Nice á Húsavík

Þorsteinn ÞH 115

926. Þorsteinn ÞH 115 ex Þorsteinn GK 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þorsteinn ÞH 115 siglir hér inn Stakksfjörðinn áleiðis til hafnar í Njarðvík á síðustu vetrarvertíð. Þorsteinn var smíðaður í Svíþjóð 1946 og hefur alla tíð heitið þessu nafni, fyrst EA 15, því næst GK 15 og nú síðustu árin ÞH 115. Útgerð og eigandi … Halda áfram að lesa Þorsteinn ÞH 115

Sighvatur GK 57

1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þessar myndir tók ég 22. júní í sumar þegar Sighvatur GK 57 kom til heimahafnar í Grindavík eftir endurbyggingu í Póllandi. Sighvatur sem áður hét Sævík GK 257  var um eitt ár í Algorskipasmíðastöðinni þar sem það var allt endurbyggt og lengt.  Um … Halda áfram að lesa Sighvatur GK 57