297. Gullfaxi GK 14 ex Eldhamar II GK 139. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Hér er Gullfaxi GK 14 kominn á endastöð í fjörunni í Grindavík þar sem hann var rifinn vorið 2008. Upphaflega Magnús Marteinsson NK 85 eins og kom fram hér á síðunni fyrir stuttu. Smíðaður 1956 fyrir Svein Magnússon útgerðarmann í Neskaupstað hjá … Halda áfram að lesa Gullfaxi GK 14 á endastöð
Flokkur: Bátar
Sæbjörg EA 184 að veiðum við Kópasker
2047. Sæbjörg EA 184 ex Linni SH 303. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Grímseyjarbáturinn Sæbjörg EA 184 er á þorskanetum og rær þessa dagna frá Kópaskeri við Öxarfjörð. Og þar tók Gaukur Hjartarson þessa mynd þar sem kallarnir eru að leggja trossu í hafið. Sæbjörg EA 184 hét upphaflega Magnús Guðmundsson ÍS 97 frá Flateyri en … Halda áfram að lesa Sæbjörg EA 184 að veiðum við Kópasker
Nýi Páll Jónsson GK 7 kominn á flot
2957. Páll Jónsson GK 7 kominn á flot í Gdansk. Ljósmynd Kjartan Viðarsson 2019. Eins og sagði hér á síðunni í gær var stefnt að því að þetta glæsilega 45 metra langa og 10,5 metra breiða línuskip sem er á myndunum færi á flot í dag. Og það gekk eftir því hinn nýi Páll Jónsson … Halda áfram að lesa Nýi Páll Jónsson GK 7 kominn á flot
Páll Jónsson GK 7 í smíðum í Alkorskipasmíðastöðinni
Nýr Páll Jónsson GK í smíðum í Póllandi. Ljósmynd Kjartan Viðarsson 2019. Nýr Páll Jónsson GK 7 er óðum að taka á sig endanlega mynd í Alkorskipasmíðastöðinni í Gdansk í Póllandi. Stefn er að því að þetta glæsilega 45 metra langa og 10,5 metra breiða línuskip fari á flot á morgun. Kjartan Viðarsson útgerðarstjóri Vísis … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 7 í smíðum í Alkorskipasmíðastöðinni
Kaldbakur og Björgúlfur að veiðum
2891. Kaldbakur EA 1 - 2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Guðmundur Rafn Guðmundsson 2019. Á þessari mynd Gunda eru skuttogararnir Kaldbakur EA 1 og Björgúlfur EA 312 að veiðum. Myndin var tekin í fyrrdag um borð í þriðja Samherjatogaranum af þessari gerð sem er Björg EA 7. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Kaldbakur og Björgúlfur að veiðum
Þorsteinn ÞH 115 rær frá Suðurnesjum
Þorsteinn ÞH 115 ex Þorsteinn GK 15. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Þorsteinn ÞH 115 frá Raufarhöfn hefur róið þessa vertíðina, eins og undanfarnar vertíðir, frá Suðurnesjum. Elvar Jósefsson sendi síðunni þessar myndir en þá efri tók hann í gær þegar Þorsteinn kom að landi í Njarðvík. Á þeirri neðri er hann að koma til hafnar … Halda áfram að lesa Þorsteinn ÞH 115 rær frá Suðurnesjum
Komið til hafnar í Reykjavík
Komið til hafnar í Reykjavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér birtast myndir sem ég tók í Reykjavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar og sýna nokkra fiskibáta koma að landi. 1091. Helgi Magnússon RE 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Helgi Magnússon RE 41 var smíðaður fyrir Bíldælinga í Stykkishólmi árið 1969 og hét Helgi Magnússon BA 32. … Halda áfram að lesa Komið til hafnar í Reykjavík
Stjörnutindur SU 159
972. Stjörnutindur SU 159 ex Pétur Ingi KE 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Stjörnutindur SU 159 hét upphaflega Þorsteinn RE 303 og hefur nokkuð komið við sögu hér á síðunni enda litríkur ferill hjá þessum bát sem smíðaður var í Þýska alþýðuveldinu árið 1965. Búlandstindur hf. á Djúpavogi keypti bátinn frá Keflavík þar sem hann … Halda áfram að lesa Stjörnutindur SU 159
Guðbjörg GK 77
2468. Guðbjörg GK 77 ex Guðbjörg GK 666. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Guðbjörg GK 77 sem áður var GK 666 kemur hér til hafnar í Grindavík í gær. Upphaflega hét báturinn, sem er í eigu Stakkavíkue ehf., Ársæll Sigurðsson HF 80 og var smíðaður í Kína árið 2001. Yfirbyggður i Póllandi 2005. Seldur Ingimundi hf. … Halda áfram að lesa Guðbjörg GK 77
55 ára Hamar SH 224
253. Hamar SH 224 ex Jökull ÞH 299. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2019. Línuskipið Hamar SH 224 hafði stutta viðdvöl í Grindavík í gær og náði Jón Steinar þessum myndum af honum koma inn. Hamar SH 224 hét upphaflega Jörundur II RE 299, smíðaður í Englandi 1964. 1969 var hann keyptur til Raufarhafnar þar sem hann … Halda áfram að lesa 55 ára Hamar SH 224









