964. Gissur Hvíti HU 35 ex Gissur Hvíti SF 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Rækjubáturinn Gissur Hvíti HU 35 lætur hér úr höfn á Húsavík á fallegu sumarkveldi árið 2000. Hann var í eigu rækjuvinnslunnar Særúnar á Blönduósi. Upphaflega hét báturinn Bára SU 526 frá Fáskrúðsfirði og var í eigu Árna Stefánssonar. Síðar var hann … Halda áfram að lesa Gissur Hvíti HU 35
Flokkur: Bátar
Helgi SF 50 á Siglufirði
TFDV. Helgi SF 50. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Vélbáturinn Helgi SF 50 var smíðaður fyrir Hornfirðinga í Danmörku 1956 og var 56 brl. að stærð. Á þessari mynd Hannesar Baldvinssonar er hann að koma með síld til löndunar á Siglufirði. 15. september 1961 fórst Helgi SF 50 á Færeyjabanka og fórust þar sjö menn, en … Halda áfram að lesa Helgi SF 50 á Siglufirði
Hafbjörg EA 23
62. Hafbjörg EA 23 ex Jón Bjarnason SF 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér siglir Hafbjörg EA 23 frá Hauganes eftir að hafa verið skveruð í Slippstöðinni á Akureyri. Hafbjörg EA 23 hét upphaflega Gísli lóðs GK 130 og var smíðaður fyrir Jón Gíslason útgerðarmann í Hafnarfirði árið 1961. Í Morgunblaðinu 1. desember 1961 sagði svo … Halda áfram að lesa Hafbjörg EA 23
Ísey ÁR 11 kemur til hafnar í dag
1458. Ísey ÁR 11 ex Kristbjörg ÁR 11. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Dragnótabáturinn Ísey ÁR 11 kom til hafnar í Grindavík undir kvöld og Jón Steinar tók á móti henni með myndavélina á lofti. Ísey ÁR 11 er í eigu Saltabergs ehf. sem nýverið endurnefndi bátinn sem áður hét Kristbjörg ÁR 11. Báturinn hét upphaflega … Halda áfram að lesa Ísey ÁR 11 kemur til hafnar í dag
Þengill ÞH 114
1099. Þengill ÞH 114 ex Kópur ÞH 114. Ljósmynd Sigurgeir Smári Harðarson. Hér eru bræðurnir Guðjón og Kristján Björnssynir að draga línuna á Þengli ÞH 114 sem þeir áttu og gerðu út ásamt Herði Arnórssyni. Þengill ÞH 114 var smíðaður á Akureyri árið 1970 fyrir Gest Halldórsson á Húsavík sem nefndi bátinn Kóp ÞH 114. … Halda áfram að lesa Þengill ÞH 114
Fullfermi á 22,5 klukkutímum úr höfn í höfn
2749. Áskell EA 749 ex Helga RE 49. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Það hefur verið mokfiskerí hjá köllunum á Áskeli EA 749 og í dag komu þeir til hafnar í Grindavík með fullfermi, 180 kör eftir 22,5 klst. veiðiferð. Jón Steinar, sem tók þessar myndir í dag, skutlaði bróður sínum um borð í Áskel kl. … Halda áfram að lesa Fullfermi á 22,5 klukkutímum úr höfn í höfn
Fanney SK 83
619. Fanney SK 83 ex Hrafnsey SF 8. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Fanney SK 83 kemur hér að bryggju á Húsavík undir stjórn Þórðar Birgissonar í marsmánuði 2003. Báturinn hét upphaflega Jón Jónsson SH 187 frá Ólafsvík. Smíðaður í Skipasmíðastöð KEA á Akureyri 1959. Hét síðan lengi vel Sóley SH 124 frá Grundarfirði og Hrafnsey … Halda áfram að lesa Fanney SK 83
Smíði á Vestmannaey og Bergey á áætlun
Smíðin á Vestmannaey gengur samkvæmt áætlun. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson Smíðin á Vestmannaeyjarskipunum Vestmannaey og Bergey í Aukra í Noregi gengur samkvæmt áætlun, en skipin eru hluti af sjö skipa raðsmíðaverkefni sem íslensk útgerðarfyrirtæki sömdu um við fyrirtækið Vard. Á heimasíðu Síldarvinnskunnar hf. segir að gert sé ráð fyrir að Vestmannaey verði afhent útgerðarfélaginu Bergi-Hugin, dótturfélagi … Halda áfram að lesa Smíði á Vestmannaey og Bergey á áætlun
Vörður ÞH 44 kominn um borð í Jumbo Jubilee
2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Gjögur hf. 2019. Hér er verið að hífa Vörð ÞH 44 um borð í flutningaskipið Jumbo Jubille í nótt austur í Víetnam. Skip þetta mun flytja Vörð ÞH 44 til Noregs og með í för verða Áskell ÞH 48, Steinunn SF 10 og Þinganes SF 25. Þessi skip eru hluti … Halda áfram að lesa Vörður ÞH 44 kominn um borð í Jumbo Jubilee
Trausti ÁR 80
133. Trausti ÁR 80 ex Álaborg ÁR 26. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Trausti ÁR 80 kemur hér að landi í Þorlákshöfn um árið en hann var einn A-Þýsku stálbátanna sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga. Trausti ÁR 80 var smíðaður 1961 fyrir Hraðfrystihús Stöðfirðinga. Hann mældist í upphafi 101 brl. en var endurmældur síðar og mældist við … Halda áfram að lesa Trausti ÁR 80









