1246. Lyngey SF 61 ex Fylkir NK 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Lyngey SF 61 hét upphaflega Fylkir NK 102 og var smíðuð í Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1972 fyrir Drift hf. í Neskaupstað. Báturinn, sem upphaflega var 92 brl. að stærð var seldur til Hafnar í Hornafirði árið 1978 og fékk þá nafnið Lyngey SF … Halda áfram að lesa Lyngey SF 61
Flokkur: Bátar
Örvar SH 777 á Skjálfanda
2159. Örvar SH 777 ex Vestkapp SF-8-S. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Línuskipið Örvar SH 777 frá Hellisandi kom til löndunar á Húsavík þann 15. september árið 2009 og þá voru þessar myndir teknar. Upphaflega hét skipið Tjaldur II SH 370 og var smíðaður í Noregi fyrir KG fiskverkun á Rifi árið 1992. Líkt og systurskipið … Halda áfram að lesa Örvar SH 777 á Skjálfanda
Ársæll SH 88
1014. Ársæll SH 88 ex Steinunn SF 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Ársæll SH 88, sem hér sést nýskveraður og fínn í Hafnarfjarðarhöfn í lok ágústmánaðar árið 2004, var í eigu Sólborgar ehf. í Stykkishólmi. Svo sagði í Morgunblaðinu 25. ágúst 2001 þegar báturinn kom til nýrrar heimahafnar í Stykkishólmi: Nýr bátur kom til heimahafnar … Halda áfram að lesa Ársæll SH 88
Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí
Vertíðarbátar við bryggju í Ólafsvík fyrir margt löngu. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Þann 11. maí er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd af vertíðarbátum við bryggju í Ólafsvík. Myndina tók Þorgeir Baldursson en bátarnir eru fv. Lómur SH 177, Tindfell SH 21, Halldór Jónsson SH 217, Sveinbjörn Jakobsson SH 10 og Matthildur … Halda áfram að lesa Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí
Þinganes SF 25
2970. Þinganes SF 25. Ljósmynd Óskar Franz 2020. Óskar Franz tók þessa mynd af Þinganesinu frá Hornafirði í gær þegar það kom að landi í Þorlákshöfn með fullfermi. Þinganes SF 25 er í hópi sjö systurskipa sem norska skipasmíðastöðin VARD smíðaði fyrir íslenskar útgerðir. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Þinganes SF 25
Langanes á landleið
1202. Langanes GK 525 ex Grundfirðingur SH 12. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Jón Steinar tók þessar myndir í Njarðvík á dögunum og sýna þær netabátinn Langanes GK 525 þar sem hann var á landleið eftir róður. Það er Grímsnes ehf. sem gerir bátinn út en fyrirtækið keypti hann frá Grundarfirði í fyrra. Báturinn hét upphaflega … Halda áfram að lesa Langanes á landleið
Kristbjörg VE 70
136. Kristbjörg VE 70. Ljósmynd Hannes Baldvinsson. Kristbjörg VE 70 frá Vestmannaeyjum er hér drekkhlaðin af síld á mynd Hannesar Baldvinssonar á Siglufirði. Báturinn var smíðaður í Noregi árið 1960 fyrir Svein Hjörleifsson í Vestmannaeyjum. Í Morgunblaðinu 13. apríl 1960 sagði svo frá komu Kristbjargar til heimahafnar: Í gær kom hingað til Vestmannaeyja nýr bátur, sem … Halda áfram að lesa Kristbjörg VE 70
Gaukur GK 660
124. Gaukur GK 660 ex Verðandi RE 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Gaukur GK 660 kemur hér til hafnar í Grindavík svona hálfyfirbyggður og fínn, sennilega á vetrarvertíð 1985 eða 6. Gaukur var smíðaður árið 1962 í Molde í Noregi fyrir Gauksstaði h/f í Garði og hét Jón Finnsson GK 506. Báturinn hét síðar Friðþjófur SU … Halda áfram að lesa Gaukur GK 660
Runólfur SH 135
173. Runólfur SH 135. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Runólfur SH 135 liggur hér við bryggju á Siglufirði vel hlaðinn af síld en myndina tók Siglfirðingurinn Hannes Baldvinsson Þessi bátur heitir Sigurður Ólafsson SF 44 í dag en hann var smíðaður í Risör í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Runólfsson Grafarnesi, Guðmund Kristjánsson og Jón Kristjánsson í Eyrarsveit Snæfellssýslu … Halda áfram að lesa Runólfur SH 135
Gísli lóðs GK 130
62. Gísli lóðs GK 130. Ljósmynd Margeir Margeirsson 1963. Gísli lóðs GK 130 er hér að ljúka við að háfa úr síldarnótinni en myndina tók Margeir Margeirsson árið 1963. Gísli lóðs GK 130 var smíðaðurárið 1961 í Danmörku fyrir Jón Gíslason útgerðarmann í Hafnarfirði. Í Morgunblaðinu 1. desember 1961 sagði svo frá komu Gísla lóðs … Halda áfram að lesa Gísli lóðs GK 130









