Western Rock. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Flutningaskipið Western Rock kom til Húsavíkur í marsmánuði 2018 með tæki og tól fyrir Eimskip. Um var að ræða þann búnað sem notaður er til að þjónusta kísilver PCC á Bakka en Eimskip sér um þann verkþátt sem snýr að upp- og útskipun. Western Rock er glænýtt skip sem var … Halda áfram að lesa Western Rock á Húsavík
Author: Hafþór Hreiðarsson
Engey RE 1
2662. Engey RE 1 ex Jason. Ljósmynd Alfons Finnsson 2005. Frystitogarinn Engey RE 1 kom til heimahafnar í Reykjavík þann 22. maí árið 2005 og þá tók Alfons þessa mynd. HB Grandi hf. hafði keyp skipið og nefnt Engey RE 1 þegar skipið var afhent í lok nóvember árið 2004 á Las Palmas á Kanaríeyjum. … Halda áfram að lesa Engey RE 1
Steinunn SH 167
1134. Steinunn SH 167 ex Ingibjörg RE 10. Ljósmynd Alfons Finnsson. Dragnótabáturinn Steinunn SH 167 kemur hér að landi í Ólafsvík, myndina tók Alfons vinur minn. Steinunn hét upphaflega Arnfirðingur II GK 412 og var smíðaður í Stálvík í Garðabæ 1970. Eigandi Arnfirðings II frá því í ársbyrjun 1971 var Arnarvík hf. í Grindavík . Þegar … Halda áfram að lesa Steinunn SH 167
Ólafur Bjarnason SH 137
1304. Ólafur Bjarnason SH 137. Ljósmynd Alfons Finnsson. Ólafur Bjarnason SH 137 var smíðaður hjá Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi árið 1973. Það var Valafell hf. í Ólafsvík sem lét smíða bátinn og hefur átt hann og gert út alla tíð. Báturinn var skutlengdur um árið og þá hefur verið byggt yfir hann og … Halda áfram að lesa Ólafur Bjarnason SH 137
Þórsnes SH 109
2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Óskar Franz 2017. Þórsnes SH 109 kom til heimahafnar í Stykkishólmi í júnímánuði 2017 en það var keypt notað frá Noregi. Þórsnesið er 880 brúttótonna línu- og netaskip. 43,3 metrar á lengd og 10,5 metrar á breidd. Skipið var smíðað árið 1996 og er því mun yngra en gamla Þórsnesið … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109
Haförn ÞH 26
1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Haförn ÞH 26 kemur hér að landi á Húsavík þann 22. febrúar árið 2018. Haförn ÞH 26 hét áður Þorstein BA 1 frá Patreksfirði og smíðaður var í Garðabær árið 1989. Upphaflega Faxafell GK 110, því næst Blíðfari GK 275, Mundi SF 1 … Halda áfram að lesa Haförn ÞH 26
Sandfell með tæp 50 tonn milli jóla og nýars
2841. Sandfell SU 75 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þeir sóttu fast á Sandfellinu SU 75 á milli jóla og nýárs en farið var í fjóra róðra sem gáfu 47,5 tonn. Heildarafli bátsins í desember varð með þessu 186 tonn. Á heimasíðu Loðnuvinnslunnar segir einnig að Ljósafell SU 70 hafi … Halda áfram að lesa Sandfell með tæp 50 tonn milli jóla og nýars
Örvar SH 777
239. Örvar SH 777 ex Vestri BA 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Örvar SH 777 kom til Húsavíkur í nokkur skipti til löndunar haustið 2004 og tók ég þessa mynd er hann var að leggja upp í róður þann 28. september. Upphaflega hét báturinn Fróðaklettur GK og var smíðaður hjá Ankerlökker Verft A/S í Florö … Halda áfram að lesa Örvar SH 777
Tjaldur II ÞH 294
1109. Tjaldur II ÞH 294 ex Ásborg BA 84. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Tjaldur II ÞH 294 hét upphaflega Neisti RE 58 og var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1970. Seldur í árslok sama ár til Bolungarvíkur en báturinn heitir áfram Neisti en verður ÍS 218. Hann var í Bolungarvík fram yfir aldarmót en báturinn var seldur árið … Halda áfram að lesa Tjaldur II ÞH 294
Merkur á Húsavík
Merkur ex Carolyn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Flutningaskipið Merkur liggur hér við Bökugarðinn í marsmánuði árið 2012 og losar farm sinn á land. Merkur, sem heitir í dag að ég held Merkur 1, var smíðað árið 1974. Það er 76 metra langt, 12 metra breitt og mælist 1.872 GT að stærð. Hét upphaflega Dori Bres … Halda áfram að lesa Merkur á Húsavík









