638. Sæmundur HF 85 ex Sæmundur Sigurðsson HF 85. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1987. Sæmundur HF 85 dregur hér netin í Breiðafirði á vetrarvertíðinni 1987 en myndina tók Hreiðar Olgeirsson. Sæmundur HF 85 hét áður Sæmundur Sigurðsson HF 85 og var í eigu Eiríks Ólafssonar í Hafnarfirði. Á vefnum aba.is segir að báturinn var smíðaður úr … Halda áfram að lesa Sæmundur HF 85
Author: Hafþór Hreiðarsson
Egill ÍS 77
2340. Egill ÍS 77 ex Ásdís ÍS 402. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2019. Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á v/s Tý tók þessa mynd fyrir vestan á dögunum af dragnótarbátnum Agli ÍS 77. S.E ehf. á bátinn og gerir út frá Þingeyri en að fyrirtækinu stendur Stefán Egilsson og kom báturinn í stað Egils ÍS 77 … Halda áfram að lesa Egill ÍS 77
Nýja Vestmannaey VE 54 í prufusiglingu
2954. Vestmannaey VE 54 í reynslusiglingu. Ljósmynd Vard 2019. Hin nýja Vestmannaey, sem er í smíðum hjá skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi, fór í prufusiglingu hinn 27. júní sl.. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að hinn 5. júlí hafi síðan veiðarfæraprófanir fraið fra en þá var allur búnaður sem tengist veiðarfærum um borð í skipinu … Halda áfram að lesa Nýja Vestmannaey VE 54 í prufusiglingu
Grundfirðingur hefur fengið nafnið Langanes
1202. Grundfirðingur SH 24 nú Langanes GK 525. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Grundfirðingur SH 24 hefur fengið nafnið Langanes GK 525 samkvæmt skipaskrá Samgöngustofu. Eigandi er Grímsnes ehf. og heimahöfnin Njarðvík. Báturinn hét upphaflega Þorlákur ÁR og var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ 1972 fyrir Meitilinn h/f í Þorlákshöfn. Sögu hans má lesa hér Báturinn var … Halda áfram að lesa Grundfirðingur hefur fengið nafnið Langanes
Ólafur Magnússon HF 77
711. Ólafur Magnússon HF 77 ex Ólafur Magnússon VE 16. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Ólafur Magnússon HF 77 kemur hér til hafnar í Sandgerði á vetrarvertíðinni árið 2002. Ólafur Magnússon var smíðaður í Skipasmíðastöð Njarðvíkur árið 1956 og var upphaflega KE 25. Smíðaður eftir teikningu Egils Þorfinssonar fyrir Albert Ólafsson ofl. í Keflavík. Svo sagði … Halda áfram að lesa Ólafur Magnússon HF 77
Örfirisey RE 4 á Halanum í dag
2170. Örfirisey RE ex Polarborg I. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frystitogarinn Örfirsey RE 4 er hér á toginu á Halanum í dag en myndirnar tók Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5. Örfirisey RE 4 var að koma úr Barentshafinu þar sem vel fiskaðist og klárar veiðiferðina á heimamiðum. Örfirisey var smíðuð árið … Halda áfram að lesa Örfirisey RE 4 á Halanum í dag
Stokksnes EA 410
1325. Stokksnes EA 410 ex Stokksnes SF 89. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1995. Þar sem ég sit og horfi út á Vigoflóann er upplagt að birta mynd af einum Spánartogaranum af minni gerðinni. Stokksnes EA 410 hét upphaflega Otur GK 5 og kom til landins 5. apríl árið 1974. Eigandi togarans var Portland hf. og heimahöfn … Halda áfram að lesa Stokksnes EA 410
Hraunsvík GK 68
727. Hraunsvík GK 68 ex Gissur ÁR6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Hraunsvík GK 68 að koma til hafnar í Grindavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Hraunsvík hét upphaflega Akurey SF 52 og var smíðuð í Danmörku 1956. Svo sagði frá í Morgunblaðinu 12. apríl 1956: Tveir nýir bátar komu til Hornafjarðar í gær. Eru … Halda áfram að lesa Hraunsvík GK 68
Samskip Artic og MYS Cheltinga
Hafnarfjarðarhöfn í lok maí 2019. Ljósmynd Magnús Jónsson. Maggi Jóns sendi mér þessar myndir fyrr í sumar en þær tók hann í lok maímánaðar í Hafnarfirði. Það var nokkuð umleikis þann dag, erlendir togarar að landa í flutningaskip við bryggju og þeir þurftu olíu og aðrar nauðsynjar. 2923. Togarinn og Barkur utan á MYS Cheltinga. … Halda áfram að lesa Samskip Artic og MYS Cheltinga
Robin M Lee og SIL við bryggju í Vigo
IMO: 8717465. M Lee og IMO: 8521347 . SIL við bryggju í Vigo. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Togararnir Robin M Lee og SIL sem legið hafa við bryggju í Vigó að undnaförnu létu úr höfn í gær. Samkvæmt AIS var áfangastaður Robin M Lee Stanley á Falklandseyjum sem er heimahöfn togarans. Hann er skráður undir fána … Halda áfram að lesa Robin M Lee og SIL við bryggju í Vigo









