1434. Þorleifur EA 88 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þorleifur EA 88 er á netaralli fyrir Hafró eins og mig grunaði og kom hann og landaði á Húsavík í morgun. Að lokinni löndun var stímið sett í Öxarfjörð þar sem netin verða lögð næst. 1434. Þorleifur EA 88 ex Hringur GK 18. … Halda áfram að lesa Þorleifur er á netaralli
Author: Hafþór Hreiðarsson
Þorleifur EA 88
1434. Þorleifur EA 88 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grímseyjarbáturinn Þorleifur EA 88 kemur hér að bryggju á Húsavík í gær, spurning hvort hann sé á netaralli fyrir Hafró. Um Þorleif má lesa hér en báturinn er í dag gerður út af AGS ehf. í Grímsey. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Þorleifur EA 88
Siggi á Bakka SH 228
2951. Siggi á Bakka SH 228 ex Gunna Beta ST 60. Ljósmynd Alfons Finnsson 2021. Siggi á Bakka SH 228 kom til hafnar í Ólafsvík í gær en hann er í eigu K. Sigurðssonar ehf. með heimahöfn á Arnarstapa. Báturinn hét áður Gunna Beta ST 60 með heimahöfn á Norðurfirði en K. Sigurðsson ehf. keypti … Halda áfram að lesa Siggi á Bakka SH 228
Stokksey ÁR 50
1245. Stokksey ÁR 50 ex Surtsey VE 2. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Stokksey ÁR 50 er hér á toginu um árið en upphaflega hét báturinn Surtsey VE 2 og var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972. Báturinn var smíðaður fyrir Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og Erling Pétursson í Vestmannaeyjum. Í upphafi mældist hann 105 brl. að … Halda áfram að lesa Stokksey ÁR 50
Grásleppubáturinn Sóley ÞH 28
7382. Sóley ÞH 28 ex Íshildur SH 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grásleppubáturinn Sóley ÞH 28 kom að landi á Húsavík um kaffileytið í dag og voru þessar myndir teknar þá. Sóley ÞH 28 hét upphaflega Gnoð HF 25 og var smíðuð árið 1993 fyrir Jón Gíslason Hafnarfirði í Bátasmiðju Guðmundar ehf. í Hafnarfirði. Árið … Halda áfram að lesa Grásleppubáturinn Sóley ÞH 28
Snekkjan A og Samskip Hoffell á Eyjafirði
IMO 1012141. A og IMO 9196943. Samskip Hoffell mætast á Eyjafirði. Ljósmynd Örn Stefánsson 2021. Örn Stefánsson tók þessa mynd síðdegis í dag þegar lystisnekkjan A og flutningaskipið Samskip Hoffell mættust á Eyjafirði. Í Fréttablaðinu í dag segir m.a svo frá snekkjunni: Nafn snekkjunnar er A og var henni hleypt af stokkunum árið 2015. Hún … Halda áfram að lesa Snekkjan A og Samskip Hoffell á Eyjafirði
Hörður Björnsson ÞH 260
264. Hörður Björnsson ÞH 260 ex Gullhólmi SH 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línuskipið Hörður Björnsson ÞH 260 sem GPG Seafood gerir út hélt í róður nú undir kvöld og var þessi mynd tekin þá. Upphaflega hét skipið Þórður Jónasson, fyrst RE 350 en lengst af EA 350. Smíðaður í Noregi 1964. GPG keypti hann … Halda áfram að lesa Hörður Björnsson ÞH 260
Ásdís ÞH 136 – Myndasyrpa
2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Í þessari myndasyrpu gefur að líta grásleppubátinn Ásdísi ÞH 136 frá Húsavík þar sem hún er á heimstími í veðurblíðunni í dag. Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni er það Barmur ehf. sem gerir hana út en báturinn er … Halda áfram að lesa Ásdís ÞH 136 – Myndasyrpa
Ósk ÞH 54 á Skjálfanda
2447. Ósk ÞH 54 ex Guðný NS 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grásleppubáturinn Ósk ÞH 54 er hér á siglingu til hafnar á Húsavík í dag en grásleppuveiðin hefur verið mjög góð hjá bátnum. Ósk ÞH 54 er tæp 12 bt. að stærð af AWI-gerð og smíðuð í Færeyjum 1999. Eigandi frá árinu 2016 er Sigurður Kristjánsson … Halda áfram að lesa Ósk ÞH 54 á Skjálfanda
Ásdís ÞH 136
2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grásleppubáturinn Ásdís ÞH 136 kemur hér að bryggju á Húsavík síðdegis í dag. Það er Barmur ehf. sem gerir hana út en báturinn er af gerðinni Cleopatra 31. Hann hét upphaflega Kristján ÍS 110 en þegar hann var keyptur til Húsavíkur árið … Halda áfram að lesa Ásdís ÞH 136









