2376. Mávur SI 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Mávur SI 76 leggur hér upp í handfæraróður frá Húsavík að kveldi 14. júlí árið 2004. Þarna hafði Tjörnes ehf., sem Olgeir Sigurðsson stóð að, nýlega keypt bátinn sem fékk skömmu síðar nafnið Siggi Valli ÞH 44. Þetta var fyrsti róður hjá nýjum eiganda en Mávur SI … Halda áfram að lesa Mávur SI 76
Author: Hafþór Hreiðarsson
Sigurbjörg Þorsteins BA 65
1100. Sigurbjörg Þorsteins BA 65 ex Erlingur GK 214. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurbjörg Þorsteins BA 65 frá Bíldudal kemur hér til hafnar á Húsavík um árið. Báturinn hét upphaflega Siglunes SH 22 frá Grundarfirði, smíðaður hjá Þorgeir og Ellert h/f árið 1970 fyrir Hjálmar Gunnarsson útgerðarmann. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður var … Halda áfram að lesa Sigurbjörg Þorsteins BA 65
Marina á Skjálfanda
IMO 9438066. Marina. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Marina liggur hér framundan Húsavíkurhöfða og farþegar þess selfuttir í land á skipsbátum. Skipið, sem var smíðað í Genova á Ítalíu árið 2011, siglir undir fána Marshalleyja og heimahöfn þess er Majuro. Lengd þess er 239,3 metrar og breiddin 32,2 metrar. Það mælist 66,084 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Marina á Skjálfanda
Simma ST 7
1959. Simma ST 7 ex Sunna Líf KE 71. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Simma ST 7,sem er hér að koma að bryggju á Drangsnesi sumarið 2018 hét upphaflega Esjar SH 75. Báturinn var smíðaður hjá Mánavör hf. á Skagaströnd árið 1988. Esjar var gerður út frá Rifi í um tíu ár en þá seldur á … Halda áfram að lesa Simma ST 7
Dagfari á Skjálfanda
1470. Dagfari ex Salka. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér birtast nokkrar myndir af Dagfara í hvalaskoðunarferð á Skjálfanda um helgina. Það er Norðursigling á Húsavík sem gerir hann út en Dagfari hann áður Salka. Báturinn hét upphaflega Hafsúlan RE 77 og var smíðuð í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976. 1470. Dagfari ex Salka. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Dagfari á Skjálfanda
Sylvía á Skjálfanda
1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Sylvía sem Gentle Giants gerir út er hér í hvalaskoðun á Skjálfanda í gær. Silvía var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri árið 1976 og hét upphaflega Sigrún ÞH 169 frá Grenivík. 1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2023. By clicking … Halda áfram að lesa Sylvía á Skjálfanda
Garðar á Skjálfanda
260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Norðursiglingarbáturinn Garðar siglir hér til móts við hvalina á Skjálfanda í dag og flóinn dúnmjúkur eins og sjá má. Sá þegar heim kom að skjálftahrina er á Tjörnesbrotabeltinu en hvalirnir virtust ekkert láta það á sig fá. Sáum nokkra hnúfubaka sem voru sallarólegir. Garðar … Halda áfram að lesa Garðar á Skjálfanda
Smyrill ÞH 57 á Skjálfanda í dag
6941. Smyrill ÞH 57 ex Hafdís SI 131. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Smyrill ÞH 57 er hér á siglingu á Skjálfanda í dag en hann var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar hf. í Hafnarfirði árið 1987. Hann bar nafnið Dúan þar til í ágúst 2021 eins og lesa má hér. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Smyrill ÞH 57 á Skjálfanda í dag
Bjössi Sör haustið 2010
1417. Bjössi Sör ex Breiðdælingur SU 500. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Hér birtist mynd af hvalaskoðunarbátnum Bjössa Sör sem ég tók á Skjálfanda 25. september 2020. Báturinn hét upphaflega Sólrún EA og var smíðaður fyrir Sólrúnu h/f á Litla-Árskógssandi en hún var síðasti báturinn sem var smíðaður hjá Skipasmíðastöð KEA. Norðursigling keypti hann frá Breiðdalsvík … Halda áfram að lesa Bjössi Sör haustið 2010
World Explorer kom og fór
IMO 9835719. World Explorer. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Skemmtiferðaskipið World Explorer kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Norðurgarðinum. Skipið, sem siglir undir fána Portúgal með heimahöfn á Madeira, lét úr höfn nú síðdegis. Það var smíðað árið 2019 og mælist 9,923 GT að stærð. Lengd þess er 126 metrar og breiddin 19. IMO … Halda áfram að lesa World Explorer kom og fór









