Rún EA 351

2711. Rún EA 251 ex Særún EA 351. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Rún EA 351 kemur hér til hafnar á Árskógsandi í dag eftir siglingu frá Dalvík. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði.  Síðar, eða … Halda áfram að lesa Rún EA 351

Kalkvik á Skjálfanda

IMO 9341172. Kalkvik. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Kalkvik kom til hafnar á Húsavík síðdegis í dag og lagðist að Bökugarði. Skipið siglir undir færeyskum fánað og með heimahöfn í Þórshöfn, var smíðað í Þýskalandi árið 2007. Kalkvik er 5,325 GT að stærð, lengd þess er 114 metrar og breiddin 16 metrar. IMO 9341172. Kalkvik. … Halda áfram að lesa Kalkvik á Skjálfanda

Sigurbjörg Þorsteins BA 65

1100. Sigurbjörg Þorsteins BA 65 ex Erlingur GK 214. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurbjörg Þorsteins BA 65 frá Bíldudal kemur hér til hafnar á Húsavík um árið. Báturinn hét upphaflega Siglunes SH 22 frá Grundarfirði, smíðaður hjá Þorgeir og Ellert h/f árið 1970 fyrir Hjálmar Gunnarsson útgerðarmann. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður var … Halda áfram að lesa Sigurbjörg Þorsteins BA 65

Marina á Skjálfanda

IMO 9438066. Marina. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Marina liggur hér framundan Húsavíkurhöfða og farþegar þess selfuttir í land á skipsbátum. Skipið, sem var smíðað í Genova á Ítalíu árið 2011, siglir undir fána Marshalleyja og heimahöfn þess er Majuro. Lengd þess er 239,3 metrar og breiddin 32,2 metrar. Það mælist 66,084 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Marina á Skjálfanda

Dagfari á Skjálfanda

1470. Dagfari ex Salka. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér birtast nokkrar myndir af Dagfara í hvalaskoðunarferð á Skjálfanda um helgina. Það er Norðursigling á Húsavík sem gerir hann út en Dagfari hann áður Salka. Báturinn hét upphaflega Hafsúlan RE 77 og var smíðuð í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976. 1470. Dagfari ex Salka. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Dagfari á Skjálfanda

Sylvía á Skjálfanda

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Sylvía sem Gentle Giants gerir út er hér í hvalaskoðun á Skjálfanda í gær. Silvía  var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri árið 1976 og hét upphaflega Sigrún ÞH 169 frá Grenivík. 1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2023. By clicking … Halda áfram að lesa Sylvía á Skjálfanda