Sæþór EA 101

1291. Sæþór EA 101 ex Votaberg SU 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Sæþór EA 101 frá Árskógssandi kemur hér til hafnar á Húsavík vorið 2004. Báturinn hét upphaflega Jón Helgason ÁR 12 og var smíðaður í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði árið 1973. Um bátinn má lesa nánar hér. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Sæþór EA 101

Snorri Sturluson RE 219

1328. Snorri Sturluson RE 219. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Snorri Sturluson RE 219 var einn sex stóru Spán­ar­tog­ar­anna sem komu til lands­ins á ár­un­um 1973-1975.  Þeir voru smíðaðir í Astilleros Luzuriaga S.A. skipasmíðastöðinni í Pasajes de San Juan í Baskalandi. Bæjarútgerð Reykjavíkur, BÚR, fékk þrjá þeirra. Auk Snorra þá Bjarna Benediktsson RE 210 og Ingólf Arnarson … Halda áfram að lesa Snorri Sturluson RE 219

Þröstur ÍS 222

363. Þröstur ÍS 222 ex Þröstur HU 131. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Þröstur ÍS 222 kemur hér að bryggju í Þorlákshöfn á vetrarvertíð árið 1982. Báturinn hét upphaflega Búðafell SU 90 og var smíðaður árið 1955 í Scheepswerf Kraaier skipasmíðastöðinni í Zaandam í Hollandi. Hér má lesa sögu bátsins til þessa en hann hefur borið … Halda áfram að lesa Þröstur ÍS 222

Eems Rover kom til Húsavíkur

IMO 9529190. Eems Rover. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hollenska flutningaskipið Eems Rover kom til Húsavíkur í dag eftir siglingu frá Belfast á Norður-Írlandi. Skipið, sem smíðað var árið 2009 í Kína, er með með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Eems Rover er 90 metrar að lengd, breidd þess er 15 metrar og skipið mælist 2,992 … Halda áfram að lesa Eems Rover kom til Húsavíkur

Ægir Jóhannsson ÞH 212

1430. Ægir Jóhannsson ÞH 212. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ægir Jóhannsson ÞH 212 kemur hér að landi í Sandgerði um árið. Báturinn er 29 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Ægi h/f á Grenivík og afhentur eigendum sínum 12. júlí 1975. Hann var með smíðanúmer 6 hjá Vör. Ægir Jóhannsson ÞH 212 var seldur til Suðurnesja … Halda áfram að lesa Ægir Jóhannsson ÞH 212

Litlanes ÞH 52

2018. Litlanes ÞH 52. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á þessari mynd Hreiðars Ogeirssonar gefur að líta Litlanes ÞH 52 sem smíðað var fyrir Óla Þorsteinsson á Þórshöfn árið 1989 í Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Litlanes ÞH 52 var selt til Fáskrúðsfjarðar árið 1990 þar sem það fékk nafnið Dagbjört SU 50. Báturinn heitir í dag Garpur RE 148 … Halda áfram að lesa Litlanes ÞH 52

Helgi Magnússon RE 41

1091. Helgi Magnússon RE 41 ex Helgi Magnússon BA 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Helgi Magnússon RE 41 var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Freyju á Bíldudal og hét upphaflega Helgi Magnússon BA 32. Báturinn var 15 brl. að stærð og fór smíðin fram í Skipavík hf. Stykkishólmi árið 1969. Frá Bíldudal var báturinn gerður út til ársins … Halda áfram að lesa Helgi Magnússon RE 41