Bátar við Suðurgarðinn á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það hefur snjóað talsvert á Húsavík síðustu daga en þessi mynd var tekin um miðjan dag í dag. Þarna má sjá nokkra báta liggja við Suðurgarðinn í Húsavíkurhöfn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on … Halda áfram að lesa Bátar við Suðurgarðinn
Author: Hafþór Hreiðarsson
Nóna GK 166
1893. Nóna GK 166 ex Nónborg BA 23. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Nóna GK 166 var smíðuð í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1988 og hét upphaflega Nónborg BA 23 frá Bíldudal. Árin 2001 til 2005 hét hún Nóna GK 166 og var gerð út frá Grindavík. Árið 200 fékk báturinn nafnið Knolli GK 3 með heimahöfn … Halda áfram að lesa Nóna GK 166
Árfari HF 182 á Húsavík
27. Árfari HF 182 ex Kofri RE 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Tappatogarinn Árfari HF 182 hét upphaflega Björgvin EA 311 frá Dalvík. Hann var einn 12 tapatogaranna sem smíðaðir voru í Austur-Þýskalandi fyrir Íslendinga og þegar þessar myndir voru teknar á Húsavík stundaði hann rækjuveiðar. Miðinn frá Hauki er svona: 0027….Björgvin EA 311… TF-RW. Skipasmíðastöð: … Halda áfram að lesa Árfari HF 182 á Húsavík
Háey I
2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Línubáturinn Háey I ÞH 295 lætur hér úr höfn á Húsavík eftir löndun en báturinn er gerður út af GPG Seafood ehf. á Húsavík. Báturinn, sem er 30 BT að stærð, var smíðaður hjá Víkingbátum á Esjumelum og hóf róðra í desembermánuði 2021. Með því að smella … Halda áfram að lesa Háey I
Grindavík
Frá Grindavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér kemur mynd frá Grindavík sem tekin var um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Ekki man ég hvað fjallið í bakgrunni heitir en bátarnir eru Hrafn Sveinbajranarson II GK 11, Fjölnir GK 157 og Oddgeir ÞH 222. Svo sést í stefnið á Þorbirni GK 540, held ég. Með því að … Halda áfram að lesa Grindavík
Eldey GK 74
450. Eldey GK 74 ex Skúmur KE 122. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eldey GK 74 siglir hér í leguplássið eftir löndun í Grindavík um árið. Báturinn var rifinn í Njarðvík árið 2010 en hann hét upphaflega Geir RE 406 og hér má lesa um hann. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Eldey GK 74
Wilson Porto kom með salt
IMO 9291717. Wilson Porto. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Wilson Porto kom með salt til GPG Seafood í vikunni. Skipið er 2,999 GT að stærð. Lengd þess er 90 metrar og breidd 14 metrar. Það var smíðað árið 2004 í Hollandi og siglir undir norsku flaggi. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Wilson Porto kom með salt
Dagatal Skipamynda komið út
Dagatal Skipamynda fyrir árið 2024er komið úr prentun og er þetta í fimmtánda skipti sem það kemur út. Fyrtsa prentun er langt komin í sölu en áhugasamir geta pantað á korri@internet.is, verðið er 3900 kr. Fyrstir koma, fyrstir fá en á dagatalinu eru skip og bátar af ýmsum stærðum og gerðum.
Ný Cleopatra 36 til Båtsfjord í Noregi
Olavjenta TF-37-BD. Ljósmynd Trefjar 2023. Útgerðarfélagið 2Fisk AS í Båtsfjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það eru feðgarnir Tor Øyvind og Øyvind Bolle sem standa að útgerðinni og verður Tor Øyvind skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn heitir Olavjenta og er 10.99 metrar á lengd … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Båtsfjord í Noregi
Sæberg ÁR 20
163. Sæberg ÁR 20 ex Skarphéðinn RE 317. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæberg ÁR 20 hét upphaflega Vinur ÍS 102 og var smíðaður fyrir Hnífsdælinga í Þýskalandi árið 1960. 101 brl. að stærð í upphafi en síðar mældur niður í 88 brl. en það var gert árið 1974. Vinur fékk nafnið Páll Pálsson ÍS 101 árið … Halda áfram að lesa Sæberg ÁR 20









