Indriði og Háey

3007. Indriði Kristins BA 751 – 2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Línubátarnir Indriði Kristins BA 751 frá Tálknafirði og Háey I ÞH 295 frá Raufarhöfn lönduðu á Húsavík í dag og voru þessar myndir teknar nú síðdegis.

Það er Kambsnes ehf. sem gerir Indriða út en hann var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði og afhentur árið 2022.

Indriði Kristins BA 751 er af gerðinni Cleopatra 40BB, lengd bátsins er 12,5 metrar, hann er 6,5 metra breiður  og mælist 30 brúttótonn. 

Háey I ÞH 295 er gerð út af GPG Seafood ehf. og var smíðuð hjá Víkingbátum árið 202, hún er 13,2 metrar að lengd og 5.5 metra breið. hún mælist 30 BT að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd