
Oddgeir EA 600 leggur hér upp í veiðferð frá Grindavík um árið en það var Gjögur ehf. sem gerði bátinn út sem átti heimahöfn á Grenivík.
Oddgeir hét upphaflega Magnús Ólafsson GK 494 og var síðastur í röð átján systurskipa sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga hjá Boizenburg Werft. Boizenburg. Austur Þýskalandi á árunum 1965 til 1967.
Haukur Sigtryggur sendi miða:
1039….Magnús Ólafsson GK 494…. TF-ZU.
IMO: 6721072.
Skipasmíðastöð: Boizenburg Werft. Boizenburg. Austur Þýskalandi. 1967.
Nýskráður 28.06.1967.
Smíðanúmer 449.
Afhendur 06.1967.
1970 = Brúttó: 256. U-þilfari: 189. Nettó: 104.
Lengd: 32,43. Breidd: 7,22. Dýpt: 3,61.
Smíðað eftir teikningu Hjálmars R Bárðarsonar.
Mótor 1967 Lister 660 hö.
Ný vél 1987 Caterpillar. 912 hö.
Ný vél 1999 Caterpillar 738 kw. 1003 hö.
Magnús Ólafsson GK 494. Útg: Höskuldur h.f. Ytri – Njarðvík. (1967 – 1969).
Njörvi SU 620. Útg: Njörvi h.f. Reyðarfirði. (1969 – 1972).
Njörvi SU 620. Útg: Síldar og fiskimjölsverksmiðjan h.f. Akranesi. (1972).
Víðir AK 63. Útg: Síldar og fiskimjölsverk. h.f. Akranesi. (1972 – 1976).
Seldur til Noregs okt.1976 & til Íslands í mars 1977.
Jóhann Gíslason ÁR 42. Útg: Glettingur h.f. Þorlákshöfn. (1977).
Gjafar VE 600. Útg: Guðni Ólafsson o.fl. Vestm. (1977 – 1978).
Gjafar VE 600. Útg: Kleifar h.f. Vestmannaeyjum. (1979 – 1990).
Gjafar VE 600. Útg: Sæhamar ehf. Vestmannaeyjum. (1997 – 2003).
Oddgeir EA 600. Höfn: Grenivík. Útg: Sæhamar ehf. Rey. (2003 – 2004).
Oddgeir EA 600. Höfn: Grenivík. Útg: Gjögur ehf. Rey. (2006 – 2013).
Magnús Ágústsson ÞH 76. Útg: Björg Seafood ehf. Raufarhöfn. (2013).
Magnús Geir KE 5. Útg: Ósk ehf. Keflavík. (2013 – 2015).
Magnús HF 20. Útg: Björg Finance ehf. Hafnarfirði. (2015 – 2016).
Fer í brotajárn til Danmerkur 07.10.2016.



Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution