Siglunes SI 70

1146. Siglunes SI 70 ex Siglunes SH 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009.

Rækjubáturinn Siglunes SI 70 heldur hér til veiða frá Húsavík þann 22. ágúst árið 2009.

Upphaflega hét báturinn Danski Pétur VE 423 og var smíðaður hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi árið 1971.

Danski Pétur var gerður út frá Vestmannaeyjum til ársins 2003 er hann var seldur til Grundarfjarðar og fékk nafnið Siglunes SH 22 sem breyttist í SH 36 árið 2007.

Árið 2009 var Siglunesið selt til Siglufjarðar og varð þá SI 70 og gert út á rækju.

Siglunes SI 70 fór í brotajárn árið 2015.

Haustið 1987 fór Danski Pétur í miklar breytingar í Skipalyftunni í Vestmannaeyjum sem fólust m.a í yfirbyggingu og nýrri brú en áður hafði afturendanum verið slegið út.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd