
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í dag og þar var á ferðinni Silver Endeavour sem siglir undir flaggi Bahamas með heimahöfn í Nassau.
Silver Endeavor er 168 metra langt og 28 metra breitt og smíðaár er 2021. Það mælist 20.449 GT að stærð.
Skipið hét fyrsta árið Crystal Endeavour og kom þá einmitt til Húsavíkur í jómfrúarsiglingu sinni við Íslandsstrendur.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.