Harðbakur EA 303

1412. Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til heimahafnar á Akureyri þann 26. mars árið 1975. Útgerðarfélag Akureyringa h/f. fékk einnig næst síðasta skuttogarann sem smíðaður var … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 303 →

Kópur BA 175

1063. Kópur BA 175 ex Kópur GK 175. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Línubáturinn Kópur BA 175 frá Tálknafirði kom til Húsavíkur í febrúarmánuði árið 2005 og þá voru þessar myndir teknar. Kópur hét upphaflega Tálknfirðingur BA 325 og var smíðaður í Noregi árið 1968. Eigandi Harðfrystihús Tálknafjarðar. Vorið 1980 kaupir Glettingur hf. í Þorlákshöfn bátinn … Halda áfram að lesa Kópur BA 175 →

Kópur GK 175

1063. Kópur GK 175 ex Jóhann Gíslason ÁR 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kópur GK 175 hét upphaflega Tálknfirðingur BA 325 og var smíðaður í Noregi árið 1968. Eigandi hans Harðfrystihús Tálknafjarðar en vorið 1980 kaupir Glettingur hf. í Þorlákshöfn bátinn og nefnir Jóhann Gíslason ÁR 41. Um sumarið sama ár er hann seldur til Grindavíkur. … Halda áfram að lesa Kópur GK 175 →

Sigluvík SI 2

1349. Sigluvík Si 2. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Sigluvík SI 2 sést hér á toginu um árið en hún var einn Spánartogaranna af minni gerðinni og alla tíð gerð út frá Siglufirði. Togarinn var smíðaður fyrir Þormóð ramma h.f. á Siglufirði kom til landsins þann 7. apríl 1974.  Hann var smíðaður hjá Astiller skipasmíðastöðinni í Huelva … Halda áfram að lesa Sigluvík SI 2 →