Sigluvík SI 2

1349. Sigluvík Si 2. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson.

Sigluvík SI 2 sést hér á toginu um árið en hún var einn Spánartogaranna af minni gerðinni og alla tíð gerð út frá Siglufirði.

Togarinn var smíðaður fyrir Þormóð ramma h.f. á Siglufirði kom til landsins þann 7. apríl 1974. 

Hann var smíðaður hjá Astiller skipasmíðastöðinni í Huelva á Spáni og var smíðanúmer stöðvarinnar nr. 1.

Sigluvík SI 2 var afskráð af skipaskrá fyrri hluta árs 2003 og seld úr landi.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd