Bjarka og Þráni fargað ásamt fleiri bátum

5357. Þráinn ÞH 2 - 5525. Bjarki ÞH 271. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Í Morgunblaðinu í dag segir frá afdrifum sex gamallra trébáta sem staðið hafa við Safnahúsið á Húsavík í mörg ár en hurfu af sjónarsviðinu á dögunum. Fram kemur m.a í fréttinni að bát­arn­ir hafi verið all­ir metn­ir ónýt­ir og Menn­ing­armiðstöð Þing­ey­inga hafi … Halda áfram að lesa Bjarka og Þráni fargað ásamt fleiri bátum →

Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí

1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. 11. maí er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd af áhöfninni á Kristbjörginni ÞH 44 draga netin. Myndina tók Hreiðar Olgeirsson þá skipstjóri á Kristbjörgu II ÞH 244, sennilega vorið 1979, en hann tók árið síðar við Kristbjörginni og var með hana til ársins … Halda áfram að lesa Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí →

Tindur seldur til Marokkó

2017. Tindur ÍS 325 ex Helgi SH 135. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Tindur ÍS 325 hefur verið seldur til Marokkó og kom við í Vestmannaeyjum í vikunni á leið sinni suður til Agadir. Tindur hét upphaflega Þór Pétursson ÞH 50 og var í eigu Njarðar hf. í Sandgerði, smíðaður á Ísafirði 1989. Guðmundur Runólfsson hf. á Grundarfirði … Halda áfram að lesa Tindur seldur til Marokkó →

Airisto kom til Húsavíkur í kvöld

IMO 9213727. Airisto siglir inn Skjálfanda í kvöldsólinni. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Finnska flutningaskipið Airisto kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Bökugarðinum þar sem hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka verður skipað upp. Skipið var smíðað í Hollandi árið 2000 og hefur áður borið nöfnin Malte Rambow 2000-2003, Annalisa frá 2008-2013 og Ara … Halda áfram að lesa Airisto kom til Húsavíkur í kvöld →

Guðbjörg við bryggju í Njarðvík

3020. Guðbjörg GK 9 ex Margrét GK 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Guðbjörg GK 9 við bryggju í Njarðvík á dögunum en báturinn, sem smíðaður var í Tyrklandi, kom til landsins sl. haust sem Margrét GK 9. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Guðbjörg við bryggju í Njarðvík →

Þórður ÞH 92

5476. Þórður ÞH 92. Ljósmynd Pétur Jónasson. Þórður ÞH 92 var smíðaður fyrir Viðar Þórðarson árið 1961 af Jóhanni Sigvaldasyni bátasmið á Húsavík. Myndin kemur úr safni Péturs Jónassonar ljósmyndara á Húsavík. Báturinn var 3,51 brl. að stærð, smíðaður úr furu og eik. Búinn 33 hestafla Volvo Pentavél. Hér má lesa sögu Þórðar en í … Halda áfram að lesa Þórður ÞH 92 →