Tjaldanes GK 525

124. Tjaldanes GK 525 ex Gaukur GK 660. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Netabáturinn Tjaldanes GK 525 kemur hér til hafnar í Njarðvík sumarið 2004. Báturinn var smíðaður árið 1962 í Molde í Noregi fyrir Gauksstaði h/f í Garði og hét Jón Finnsson GK 506. Hann hét síðar Friðþjófur SU 103, Verðandi KÓ 40 og Verðandi … Halda áfram að lesa Tjaldanes GK 525 →

Ocean Albatros

IMO 9880661. Ocean Albatros. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024 Skemmtiferðaskipið Ocean Albatros kom til Húsavíkur snemma í morgun og stoppaði til hádegis. Skipið var smíðað í Kína og afhent í apríl á síðasta ári. Lengd þess er 104,4 metrar, breiddin 18,4 metrar og það mælist 8,181 GT að stærð. Skipið siglir undir fána Portúgal með heimahöfn … Halda áfram að lesa Ocean Albatros →

Hagland Progress í Grindavík

IMO 9936343. Hagland Progress. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Norska flutningaskipið Hagland Progress kom til Grindavíkur sl. sunnudag með salt á vegum Saltkaupa til Vísis hf. Skipið kom með saltið frá Álasundi í Noregi sem er stór umskipunarhöfn fyrir salt. Hagland Progress var smíðað 2023 hjá Royal Bodewes í Hollandi og er 85 metrar að … Halda áfram að lesa Hagland Progress í Grindavík →

Misje Vita

IMO 9927421. Misje Vita. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Misje Vita kom til Húsavíkur í gærkveldi eftir siglingu frá Hollandi. Skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Misje Vita var smíðað á Sri Lanka árið 2022 og siglir undir norsku flaggi. Heimahöfn skipsins er Bergen. Skipið er 89,5 metra langt, breidd þess er … Halda áfram að lesa Misje Vita →

Hafsúla KE 46

1470. Hafsúla KE 46 ex Haförn ÍS 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafsúla KE 46 hét upphaflega Hafsúlan SH 7, smíðuð fyrir Halldór S. Sveinsson í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976. Afhent í janúar 1977, 37 brl. að stærð búinn 365 hestafla Caterpillar aðalvél. Heimahöfn Rif á Snæfellsnesi. Í ágústmánuði 1977 var báturinn skráður … Halda áfram að lesa Hafsúla KE 46 →

Hildur

1354. Hildur ex Héðinn HF 28. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skonnorturnar Hildur og Ópal komu til Húsavíkur í gærmorgun og hér er það Hildur sem siglir inn til hafnar. Þær voru að koma frá Grænlandi þar sem siglt hefur verið með farþega um fjarðarkefi Scoresbysund. Hildur var byggð á Akureyri árið 1974 á Bátaverkstæði Gunnlauga og … Halda áfram að lesa Hildur →

Suðurey VE 500

1258. Suðurey VE 500 ex Gunnar Jónsson VE 500. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Suðurey VE 500 hét upphaflega Gunnar Jónsson VE 500 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972. Báturinn, sem var 147 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Jón Valgarð Guðjónsson, Vestmannaeyjum og Ísfell hf. Reykjavík.  Árið 1974 var Gunnar Jónsson VE 500 … Halda áfram að lesa Suðurey VE 500 →