Faldur ÞH 153

1267. Faldur ÞH 153 ex Votaberg ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hér leggur Faldur ÞH 153 upp í siglingu til Þórshafnar eftir að hafa verið í slipp á Húsavík. Myndin var tekin á síðari hluta tíunda áratugs síðustu aldar.

Faldur hét upphaflega Votaberg ÞH 153 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. í Vestmannaeyjum og lauk smíði hans nokkru áður en eldgosið hófst í Heimaey þann 23. janúar 1973.

Báturinn var smíðaður fyrir Sveinbjörn Joensen á Þórshöfn á Langanesi Þorbergur og Níels Jóhannssynir á Þórshöfn keyptu hann í desember sama ár. Heimild. Íslensk skip.

Báturinn hét Votaberg til ársins 1978 er nafnabreyting varð og hann fékk nafnið Faldur. Heimild aba.is

Sumarið 2001 var hann keyptur til Húsavíkur og veturinn þar á eftir notaður til að breyta honum í hvalaskoðunarbát. 

Faldur hóf hvalaskoðunarsiglingar á vegum Gentle Giants sumarið 2002 og er enn að. Faldur er 18 brl. að stærð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s