
6939. Jenna EA 272 ex Örn SF 70. Ljósmynd Gunnar Páll Baldursson 2022.
Strandveiðibáturinn Jenna EA 272 kemur hér að landi á Raufarhöfn í sumar en þangað var báturinn keyptur frá Grenivík og fékk síðar nafnið Votaberg ÞH 102.
Báturinn var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1987 og er 5,90 brl. að stærð.
Hans upphaflega nafn var Drangavík HF 111 sem hann bar til ársins 1991 þegar hann var seldur frá Hafnarfirði til Hafnar í Hornafirði. Þar fékk hann nafnið Örn SF 70.
Árið 2007 fékk hann nafnið sem hann ber á myndinni og heimahöfn hans Grenivík.
Það var svo í vor sem Sóldöggehf. keypti hann til Raufarhafnar og gaf honum nafnið Votaberg.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution