
Togbáturinn Polarbjoern R 41 er hér við bryggju í Gilleleje á Norður Sjálandi í Danmörku.
Báturinn, sem er með heimahöfn í Tejn á Borgundarhólmi, var smíðaður árið 1962 hjá H. Gregersens Båtbyggeri í Noregi.
Polarbjoern er 15,53 metrar að lengd, breidd hans er 4,47 metrar og hann mælist 29,2 BT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution