7158. Sæunn ÞH 22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Að mynda Sæunni ÞH 22 á aðventunni er nánast orðin hefð hjá mér, en þó ekki fyrr en Sævar Guðbrandsson eigandi hennar hefur sett upp jólaseríuna á hana. Og það gerði hann í gær og Sæunn því mynduð prýdd jólaljósum í dag. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Sæunn ÞH 22
Year: 2018
Vilhelm Þorsteinsson EA 11
2410. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Vilhelm Þorsteinsson EA 11 liggur nú við bryggju á Akureyri með jólaseríuna uppi. Það var vel við hæfi að taka myndir af þessu mikla aflaskipi ljósum prýtt því þetta eru síðustu jól hans í íslenska fiskisskipaflotanum. Eins og kunnugt er hefur skipið verið selt til Rússlands … Halda áfram að lesa Vilhelm Þorsteinsson EA 11
Þorsteinn Gíslason GK 2
288. Þorsteinn Gíslason GK 2 ex Þorsteinn Gíslason KE 31. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Þorsteinn Gíslason GK 2 var smíðaður í Þýskalandi 1959 og var 76 brl. að stærð búinn 400 hestafla MWM aðalvél. Báturinn hét upphaflega Árni Geir KE 31 en árið 1970 fékk hann nafnið Þorsteinn Gíslason KE 31. 1975 fékk hann GK … Halda áfram að lesa Þorsteinn Gíslason GK 2
Kristrún RE 177
2774. Kristrún RE 177 ex Appak. Ljósmynd Óskar Franz 2017. Línuskipið Kristrún RE 177 er í eigu Fiskkaupa hf. sem keypti skipið frá Kanada árið 2008 en þar hét það Appak og var í eigu Norðmanna. Upphaflega hét Kristrún RE 177 Staalbjørn, þá Stalbjørn og Eldfisk áður en það fékk Appaknafnið. Kristrún var smíðuð í Solstrand … Halda áfram að lesa Kristrún RE 177
Ósk ÞH 54
2447. Ósk ÞH 54 ex Guðný NS 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Ósk ÞH 54 hét áður Guðný NS 7 og var keypt til Húsavíkur frá Seyðisfirði í ársbyrjun 2016. GPG Seafood ehf. keypti bátinn bátinn þaðan og færði aflaheimildir hans yfir á annan bát í eigu fyrirtækisins. Guðný er tæp 12 bt. að stærð af AWIgerð … Halda áfram að lesa Ósk ÞH 54
Skógafoss á Húsavík
Skógafoss við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Skógafoss Eimskipafélagsins kom til Húsavíkur upp úr miðnætti í gær og lagðist að Bökugarðinum þar sem upp- og útskipun fer fram. Skógafoss var smíðaður árið 2007 og hét Ice Bird til ársins 2011. Hann er 130 metrar að lengd og 20,6 metra breiður. Mælist 7.545 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Skógafoss á Húsavík
Cuxhaven NC 100 á Eyjafirði
Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Cuxhaven NC 100 er hér á siglingu undir Ólafsfjarðarmúla á leið sinni til Akureyrar í októbermánuði í fyrra. Skipið hafði verið við grálúðu- og karfaveiðar við Grænland og kom til löndunar á Akureyri. Við Haukur Sigtryggur fórum með Sigurjóni Herbertssyni á Fanney EA 82 til móts við togarann … Halda áfram að lesa Cuxhaven NC 100 á Eyjafirði
Donna Wood í Øfjord
Donna Wood. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Donna Wood siglir hér út Øfjord í Scoresby sem umlukinn er háum fjöllum á báða vegu. Hæsti tindurinn 1800 metrar minnir mig. Fékk upplýsingar um að fjallið Grundvigskirken er 1882 metrar en lengra frá sjó eru þrír tindar yfir 2000 metrar, sá hæsti 2220 metrar. Donna Wood. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. … Halda áfram að lesa Donna Wood í Øfjord
Jólalegt við Húsavíkurhöfn
Húsavíkurhöfn 14. desember 2018. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var jólalegt um að litast við Húsavíkurhöfn í kvöld og lognið nær algjört. Sem gerði það að verkum að ég náði í myndavélina heim og stillti upp þrífótnum á bryggjunni og hóf að mynda. Og hér að neðan má sjá afraksturinn. 306. Knörrinn og Dagmar Aaen í … Halda áfram að lesa Jólalegt við Húsavíkurhöfn
Addi Afi GK 302
2701. Addi Afi GK 302. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Addi afi GK 302 er hér á siglingu á Eyjafirði 25. febrúar árið 2006 en þarna var báturinn glænýr. Á fréttavef Morgunblaðsins mátti lesa þessa frétt sama dag: Sýndu Akureyringum Adda afa JE vélaverkstæði á Siglufirði hefur afhent nýjan fiskibát til nýs eiganda, Útgerðarfélags Íslands. Báturinn … Halda áfram að lesa Addi Afi GK 302









