Svend C G-6-23. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Grænlenski frystitogarinn Svend C GR-6-23 kom til hafnar í Reykjavík á sunnudagsmorgni í júnímánuði sl. Ég var staddur í höfuðborginni og sá til ferða hans á AIS-kerfinu. Ég beið hans inn við sundin og tók meðfylgjandi myndir. Svend C var hannaður af fyrirtækinu Skipsteknisk í Noregi og smíðaður í … Halda áfram að lesa Svend C GR-6-23
Month: nóvember 2018
Þorsteinn ÞH 115
926. Þorsteinn ÞH 115 ex Þorsteinn GK 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þorsteinn ÞH 115 siglir hér inn Stakksfjörðinn áleiðis til hafnar í Njarðvík á síðustu vetrarvertíð. Þorsteinn var smíðaður í Svíþjóð 1946 og hefur alla tíð heitið þessu nafni, fyrst EA 15, því næst GK 15 og nú síðustu árin ÞH 115. Útgerð og eigandi … Halda áfram að lesa Þorsteinn ÞH 115
Sólrún EA 151
2706. Sólrún EA 151 ex Tumi EA 84. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þegar Sólrún EA 151 kom úr sínum fyrsta róðri í sumar var ég staddur við Eyjafjörð og tók þessar myndir á Árskógssandi. Eins og kannski glöggir menn sjá er þetta gamla Sæunn Sæmundsdóttir ÁR 60 sem smíðuð var hjá Seiglu á Akureyri árið … Halda áfram að lesa Sólrún EA 151
Hafborg EA 152
2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Hafborg var smíðuð í Danmörku og kom ný til landsins í upphafi þessa árs. Myndirnar eru teknar á Skjálfandaflóa 8. mars er báturinn var á landleið til Húsavíkur. Hafborg er 25,95 metra löng og átta metra breið, búin til veiða með net og dragnót. Hún mælist 283 … Halda áfram að lesa Hafborg EA 152
Akurey AK 10
2890. Akurey AK 10. Skuttogarinn Akurey AK 10 kemur hér til hafnar í Reykjavík. Akurey var smíðuð árið 2017 í Tyrklandi og kom til heimahafnar í Reykjavík 20.júní 2017. Hún er eitt þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Céliktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri … Halda áfram að lesa Akurey AK 10
Skonnortan Ópal
2851. Ópal. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Hér er skonnortan Ópal við borgarísjaka í Scoresbysundi á Grænlandi haustið 2017. Skipið var smíðað af skipasmíðastöðinni Bodenwerft í Damgarten, Þýskalandi árið 1951 sem togari og var við veiðar á Eystrarsalti, í Norðursjó og Barentshafi. Á 8 árum (1973-1981) var Opal breytt í þá glæsilegu tveggja mastra skonnortu sem hún … Halda áfram að lesa Skonnortan Ópal
Drangey SK 2
2893. Drangey SK 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Drangey SK 2 er einn af fjórum skuttogurum sem Cemre skipasmíðastöðin í Tyrklandi smíðaði fyrir Íslendinga og afhentu á árinu 2017. Drangey kom til heimahafnar á Sauðárkróki 19. ágúst það ár og var þessi mynd tekin þá. Togararnir eru 62,49 metra langir og 13,54 metra breiðir og mælast 2081 BT. Togararnir eru 62,49 metra … Halda áfram að lesa Drangey SK 2
Eskey ÓF 80
2905. Eskey ÓF 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þessi mynd er síðan 19. ágúst sl. þegar línubáturinn Eskey ÓF 80 kom til hafnar á Siglufirði. Eskey var sjósett á Siglufirði í aprílmánuði 2016 en hún var smíðuð hjá Siglufjarðar-Seig fyrir Akraberg ehf. Skrokkur Eskeyjar var smíðaður hjá Seiglu á Akureyri og var 11 metra langur … Halda áfram að lesa Eskey ÓF 80
Sandfell SU 75
Sandfell SU 75 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Hér er línubáturinn Sandfell SU 75 á leið í róður frá Húsavík. Þetta var 16. október sl. en báturinn hafði landað hér deginum áður. Beið síðan af sér brælu fram undir hádegi og þá tók ég þessar myndir. Sandfell er í eigu … Halda áfram að lesa Sandfell SU 75
Sighvatur GK 57
1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þessar myndir tók ég 22. júní í sumar þegar Sighvatur GK 57 kom til heimahafnar í Grindavík eftir endurbyggingu í Póllandi. Sighvatur sem áður hét Sævík GK 257 var um eitt ár í Algorskipasmíðastöðinni þar sem það var allt endurbyggt og lengt. Um … Halda áfram að lesa Sighvatur GK 57









