900. Sórún NS 900 ex Dóri ÍS 252. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1989. Sólrún NS 26 hét upphaflega Valur EA 712 og var smíðaður sem opinn súðbyrðingur á Siglufirði árið 1942. Báturinn var smíðaður fyrir aðila á Dalvík og árið 1950 var hann dekkaður. Tveim árum síðar fékk báturinn nafnið Níels Jónsson EA 712 með heimahöfn … Halda áfram að lesa Sólrún NS 26
Le Champlaine kom til Húsavíkur í kvöld
IMO: 9814038. Le Champlain. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið Le Champlaine kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Norðurgarði. Le Champlaine var smíðað árið 2018 hjá Vard Group AS í Noregi, það er 131, 46 metrar að lengd og 18 metra breitt. Það mælist 9,976 GT að stærð. Le Champlaine, sem siglir undir frönskum … Halda áfram að lesa Le Champlaine kom til Húsavíkur í kvöld
Hrafn Sveinbjarnarson GK 255
1972. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 ex Snæfel EA 740. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í gærmorgun þegar Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 kom til löndunar í Grindavík. Togarinn var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1988 fyrir Hríseyinga en seldur til Grindavíkur síðla árs 1989. Það var Þorbjörn hf. sem keypti … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson GK 255
Hulda Björnsdóttir GK 11
3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af Huldu Björnsdóttur GK 11 í morgun þegar hún kom til löndunar í Grindavík. Aflinn var um 100 tonn. Uppistaðan þorskur, ýsa og karfi. Það er útgerðarfélagið Ganti ehf í Grindavík sem á og gerir togarann út en hann var … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11
World Traveller var á Húsavík í dag
IMO 9904807. World Traveller. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið World Traveller var á Húsavík og var þessi mynd tekin eftir að skipið lagði úr höfn um miðjan dag. Skipið var smíðað árið 2022 og siglir undir Portúgölskum fána með heimahöfn á Madeira. Lengd þess er 126 metrar, breiddin 19 metrar og það mælist 9,930 GT … Halda áfram að lesa World Traveller var á Húsavík í dag
Bergey VE 44
2964. Bergey VE 44 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Bergey VE 44 kom til löndunar í Grindavík í gær og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Bergey hét áður Bergur VE 44 en upprunalega Bergey VE 144. 2964. Bergey VE 44 ex Bergur VE 44. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. Með … Halda áfram að lesa Bergey VE 44
Silver Wind
IMO 8903935. Silver Wind. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið Silver Wind kom inn Skjálfandann í morgun og lagðist við akkeri framundan Húsavík. Skipið, sem var smíðað á Ítalíu árið 1995, er 162 metrar að lengd, 26 metra breitt og mælist 17.235 GT að stærð. Það siglir undir fána Bahama með heimahöfn í Nassau. Með því … Halda áfram að lesa Silver Wind
Skinney í slipp á Akureyri
2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skinney SF 20 frá Hornafirði er hér í slippnum á Akureyri í dag nýmáuð og fín. Skinney, var líkt og systurskipið Þórir SF 77 nú Birtingur NK 119, smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan árið 2008 fyrir Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði. Þau … Halda áfram að lesa Skinney í slipp á Akureyri
Hugrún Fjóla DA 4
7337. Hugrún Fjóla DA 4 ex Gunna Valda ÍS 75. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025. Hugrún Fjóla DA 4 hét upphaflega Unnur ÁR 7 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1991. Árið 1997 varð Unnur SF 202 með heimahöfn á Hornafirði og síðar sama ár var heimahöfnin orðin Grindavík og Unnur GK 41. … Halda áfram að lesa Hugrún Fjóla DA 4
Emma VE 219
1664. Emma VE 219. Ljósmynd Hörður Harðarson. Emma VE 219, smíðuð í Póllandi fyrir samnefnt fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Nánar tiltekið hjá Tczew Yard í Tczew í Póllandi árið 1988. Emma var 82 brl. að stærð en eftir lengingu um 5,5 metra árið 1999 mældist hún 114 brl. að stærð. Árið 2000 keypti Bergur-Huginn hf. Emmuna og … Halda áfram að lesa Emma VE 219









