Ólafur Bjarnason SH 137

1304. Ólafur Bjarnason SH 137. Ljósmynd Alfons Finnsson. Ólafur Bjarnason SH 137 var smíðaður hjá Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi árið 1973. Það var Valafell hf. í Ólafsvík sem lét smíða bátinn og hefur átt hann og gert út alla tíð. Báturinn var skutlengdur um árið og þá hefur verið byggt yfir hann og … Halda áfram að lesa Ólafur Bjarnason SH 137 →

Þórsnes SH 109

2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Óskar Franz 2017. Þórsnes SH 109 kom til heimahafnar í Stykkishólmi í júnímánuði 2017 en það var keypt notað frá Noregi. Þórsnesið er 880 brúttótonna línu- og netaskip. 43,3 metrar á lengd og 10,5 metrar á breidd. Skipið var smíðað árið 1996 og er því mun yngra en gamla Þórsnesið … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109 →

Sandfell með tæp 50 tonn milli jóla og nýars

2841. Sandfell SU 75 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þeir sóttu fast á Sandfellinu SU 75 á milli jóla og nýárs en farið var í fjóra róðra sem gáfu 47,5 tonn. Heildarafli bátsins í desember varð með þessu 186 tonn. Á heimasíðu Loðnuvinnslunnar segir einnig að Ljósafell SU 70 hafi … Halda áfram að lesa Sandfell með tæp 50 tonn milli jóla og nýars →

Tjaldur II ÞH 294

1109. Tjaldur II ÞH 294 ex Ásborg BA 84. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Tjaldur II ÞH 294 hét upphaflega Neisti RE 58 og var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1970. Seldur í árslok sama ár til Bolungarvíkur en báturinn heitir áfram Neisti en verður ÍS 218.  Hann var í Bolungarvík fram yfir aldarmót en báturinn var seldur árið … Halda áfram að lesa Tjaldur II ÞH 294 →

Brúarfoss

Brúarfoss á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Brúarfoss siglir hér inn Skjálfandaflóa í febrúarmánuði 2017. Brúarfoss var smíðaður 1992 og er 126,6 metra langur og 20,5 metra breiður. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

Áramótakveðja Skipamynda.com

1105. Reynir GK 177 á brennu Húsvíkinga árið 2007. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Meðfylgjandi mynd var tekin á Gamlárskvöld árið 2007 við brennu Húsvíkinga sem var nokkuð vegleg það árið. Þarna … Halda áfram að lesa Áramótakveðja Skipamynda.com →