1236. Ólafur Magnússon HU 54 ex Þórir II SF 777. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjubáturinn Ólafur Magnússon HU 54 kemur hér að landi á Húsavík Bátuurinn hét upphaflega Þórir GK 251, síðar SF 77 og smátíma Þórir II SF 777 áður en hann var keyptur til Skagastrandar. Þar fékk hann nafnið Ólafur Magnússon HU 54. Því … Halda áfram að lesa Ólafur Magnússon HU 54
Þórsnes ehf. kaupir Arnar SH 157
2660. Arnar SH 157 ex Happasæll KE 94. Ljósmynd Alfons Finnsson 2010. Fiskifréttir greina frá því að Þórsnes ehf. í Stykkishólmi, sem rekur afkastamikla saltfiskverkun, hafi nýlega keypt útgerð netabátsins Arnars SH 157. Arnar SH 157, sem hefur verið að veiða grimmt á þessari vertíð, heitir í dag Arnar II SH 757 . Arnar SH … Halda áfram að lesa Þórsnes ehf. kaupir Arnar SH 157
Ágústa EA 16
7111. Ágústa EA 16 ex Eiki Matta ÞH 301. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2019. Grásleppubáturinn Ágústa EA 16 kemur hér til hafnar á Dalvík í gær. Það var fyrr í vetur sem Ágústa ehf. í Dalvíkurbyggð keypti bátinn frá Húsavík en þar hét hann Eiki Matta ÞH 301. Heimahöfn hans er Árskógssandur. Báturinn er af Gáskagerð … Halda áfram að lesa Ágústa EA 16
Björgúlfur EA 312
2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2019. Samherjatogarinn Björgúlfur EA 312 kom til heimahafnar úr Barentshafinu í dag og tók Haukur Sigtryggur þessa mynd þá. Björgúlfur var smíðaður í Tyrklandi árið 2017 og kom til heimahafnar á Dalvík 1. júní það ár. Björgúlfur er einn fjögurra togara sem smíðaður er eftir sömu teikningu fyrir íslenskar útgerðir … Halda áfram að lesa Björgúlfur EA 312
BG nes ehf. kaupir Hafrúnu ÍS 54 frá Flateyri
2585. Hafrún ÍS 54 ex Rósi ÍS 54. Ljósmynd Flateyrarhöfn 2018. BG nes ehf. í Fjallabyggð hefur keypt línubátinn Hafrúnu ÍS 54 af West Seafood ehf. á Flateyri. Fréttavefurinn bb.is greinir frá þessu í dag. West Seafood ehf. tekur 6991 Odd á Nesi ÓF 176 upp í en eins og fram kom hér á síðunni … Halda áfram að lesa BG nes ehf. kaupir Hafrúnu ÍS 54 frá Flateyri
Guðfinnur KE 19
2606. Guðfinnur KE 19 ex Kristbjörg ST 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Guðfinnur KE 19 öslar hér til hafnar í Sandgerði vorið 2006 en bátur þessi hét upphaflega Kristbjörg ST 6. Kristbjörg ST 6 var smíðuð hjá bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði fyrir Guðmund Ragnar Guðmundsson útgerðarmaður frá Drangsnesi. Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 38, … Halda áfram að lesa Guðfinnur KE 19
Þórunn Sveinsdóttir í Karstensens Skibsværft
2401. Þórunn Sveinsdóttir í Karstensens Skibsværft í Skagen. Ljósmynd Ásgeir Kristjánsson 2019. Í síðustu viku var byrjað að púsla Þórunni Sveinsdóttur VE 401 saman í Karstensens Skibsværft A/S í Skagen. Þar er verið að lengja hana um 6,6 metra sem mun gera þetta glæsilega skip enn glæsilegra. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Þórunn Sveinsdóttir í Karstensens Skibsværft
Kristbjörg ÞH 44 kemur að landi
1009. Kristbjörg ÞH 44 ex Kristbjörg II ÞH 244. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjubáturinn Kristbjörg ÞH 44 er hér að koma að landi á Húsavík um árið enda bræla á miðunum. Kristbjörg ÞH 44 hét upphaflega Sóley ÍS 225 frá Flateyri og kom ný til heimahafnar í lok maímánaðar 1966. Smíðuð í Risør í Noregi. Sóley … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44 kemur að landi
Jónas Hjörleifsson VE 10
560. Jónas Hjörleifsson VE 10 ex Sílavík SF 134. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jónas Hjörleifsson VE 10 var í eigu Harðar Ársæls Ólafssonar í Vestmannaeyjum og síðar Vorboðans hf. þar í bæ. Báturinn sem upphaflega hét Helgi ÍS 97, var smíðaður í Hafnarfirði 1962 úr eik og furu. Hann var 8 brl. að stærð og búinn … Halda áfram að lesa Jónas Hjörleifsson VE 10
Hjalteyrin EA 306 á toginu í Jökuldýpi
1476. Hjalteyrin EA 306 ex Björgúlfur EA 312. í fjarska er 1937. Björgvin EA 311. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð. Þessar myndir sem nú birtast tók Hólmgeir Austfjörð í Jökuldýpi í vikunni en þar voru togarar að fiska vel. Einn af þeim var gamli Björgúlfur EA 312 sem nú heitir Hjalteyrin EA 306. Togarinn var smíðaður árið … Halda áfram að lesa Hjalteyrin EA 306 á toginu í Jökuldýpi









