Álftafell SU 100

1126. Álftafell SU 100 ex Villi í Efstabæ BA 214. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Álftafell SU 100 liggur hér við bryggju á Stöðvarfirði sumarið 2004 en þaðan gerði Kross ehf. bátinn út á árunum 2002 - 2007. Báturinn hét upphaflega Skálavík SU 500 og var smíðuð árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. fyrir Þjóðrek hf. … Halda áfram að lesa Álftafell SU 100

Hólmsteinn GK 20

573. Hólmsteinn GK 20 ex Hafdís GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hólmsteinn GK 20 kemur hér að landi í Sandgerði um árið og enn með gömlu brúna en kominn hvalbakur. Upphaflega hét báturinn Hafdís GK 20 og var smíðaður í Hafnarfirði árið 1946. Hann var 43 brl. að stærð og smíðaður hjá Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20

Ísnes við bryggju á Húsavík

1804. Ísnes ex Dollart. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ísnes skip, Nesskipa hf., liggur hér viðð hafnargarðinn á Húsavík sem í dag er nefndur Norðurgarðurinn. Myndin er sennilega frá því um 1990 +. Ísnes var smíðað árið 1976 í Þýskalandi og var 2,978 GT að stærð. Skrifa var en kannski má segja er því frá árinu 2015 … Halda áfram að lesa Ísnes við bryggju á Húsavík

Cuxhaven í Hafnarfjarðarhöfn

IMO 9782778. Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maggi Jóns tók þessa mynd í Hafnarfirði í fyrradag þar sem verið var kara Cuxhaven hinn þýska fyrir veiðiferð á Grænlandsmið. Cuxhaven NC 100 er í eigu Deutsche Fischfang Union, dótturfélags Samherja í Þýskalandi.  Cuxhaven NC 100 sem hannaður er af Rolls Royce er 81,22 metrar að … Halda áfram að lesa Cuxhaven í Hafnarfjarðarhöfn

Þórður Jónasson EA 350

264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér siglir Þórður Jónasson EA 350 á Akureyrarpolli um árið en Akureyri var lengstum hans heimahöfn. Þórður Jónasson, sem smíðaður var í Noregi og kom til Akureyrar í júníbyrjun árið 1964, var upphaflega RE 350. Hann var smíðaður fyrir Valtý Þorsteinsson útgerðarmann … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson EA 350

Tveir danskir

3030. Vestri BA 63 - 260. Garðar mætast á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Á þessari mynd sem tekin var í ágústmánuði í fyrra mætast tvær fleytur í mynni Húsavíkurhafnar. Og þær eiga amk. eitt sameiginlegt, það er smíðaland þeirra sem er Danmörk. Hvalaskoðunarbáturinn Garðar, sem þarna er á útleið, hét upphaflega Sveinbjörn Jakobsson SH … Halda áfram að lesa Tveir danskir

Gleðilegt nýtt ár-Happy new year-Feliz año nuevo

2992. Baldvin Njálsson GK 400 í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Magnús Jónsson. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Gleðilegt nýtt ár-Happy new year-Feliz año nuevo

Þingey ÞH 51

1650. Þingey ÞH 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Þingey ÞH 51 var smíðuð árið 1983 í Bátasmiðjunni Vör á Akureyri fyrir Auðun Benediktsson útgerðarmann á Kópaskeri. Auðun gerði bátinn m.a út til rækjuveiða á Öxarfirði. Þingey er 12 brl að stærð og upphaflega búin 215 hestafla Caterpillarvél sem skipt var út fyrir aðra eins árið … Halda áfram að lesa Þingey ÞH 51

Sigrún GK 380

1173. Sigrún GK 380 ex Sæþór KE 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigrún GK 380 hét upphaflega Sæþór KE 70 og var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi. Hann var smíðaður fyrir útgerðarfélagið Sænes hf. í Keflavík og var afhentur í júnímánuði árið 1971. Báturinn var 49 brl. að stærð búinn 240 hestafla Kelvin aðalvél. Hann var … Halda áfram að lesa Sigrún GK 380