1566. Ásþór RE 10 ex Lofottrål III. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Ásþór RE 10 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið en það var Ísbjörninn hf. sem keypti hann til landsins árið 1981. Ásþór, sem var 297 brl. að stærð, hét áður Lofottrål III og var smíðaður árið 1970 hjá A/S Storviks Mek. Verksted … Halda áfram að lesa Ásþór RE 10
Gnýfari SH 8
1463. Gnýfari SH 8 ex Sæunn BA 13. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1987. Gnýfari SH 8 frá Grundarfirði er hér að draga netin á Breiðafirði á vetrarvertíð en þaðan var hann gerður út árin 1987-1988. Báturinn hét upphaflega Háborg NK 77 frá Neskaupstað. Hann var smíðaður 1976 hjá Trésmiðju Austurlands h/f á Fáskrúðsfirði og afhentur árið … Halda áfram að lesa Gnýfari SH 8
Halldór á flot
2790. Halldór NS 302 ex Áki í Brekku SU 760. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Þá fer grásleppuvertíðin að hefjast og í gær var Halldór NS 302 sjósettur á Húsavík en þar hefur báturinn staðið uppi frá því í haust. Það er GPG Seafood sem á og gerir bátinn út sem hefur heimahöfn á Bakkafirði. Með … Halda áfram að lesa Halldór á flot
Sighvatur Bjarnason VE 81
1742. Sighvatur Bjarnason VE 81 ex Kap VE 4. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2023. Tryggvi Sigurðsson tók þessa mynd í dag þegar loðnuskipið Sighvatur Bjarnason VE 81 kom til hafnar í Vestmannaeyjum. Báturinn hét áður Kap VE 4 en fékk þetta nafn s. haust. Það er Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum sem á skipið og gerir út. Skipið … Halda áfram að lesa Sighvatur Bjarnason VE 81
Dagfari kominn í flotann á ný
1470. Dagfari ex Salka - 1417. Bjössi Sör ex Breiðdælingur SU. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Dagfari er gamalt og þekkt nafn í húsvíska flotanum og nú hefur nafnið verið tekið upp á ný. Þegar Norðursigling ehf. keypti Sölkusiglingar ehf. voru m.a í þeim pakka eikarbátarnir Fanney og Salka sem upphaflega hét Hafsúlan RE 77. Salka … Halda áfram að lesa Dagfari kominn í flotann á ný
Sökk í Hafnarfjarðarhöfn
1175. Erna ex Donna SU 55. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Eikarbáturinn Erna sökk í Hafnarfjarðarhöfn á dögunum en þar hefur báturinn lengi legið þar sem verið er að gera hann upp. Báturinn, sem skráður er sem skemmtiskip er 25 brl. að stærð. Upphaflega hét hann Hafsúlan RE 77 og var smíðaður árið 1971 hjá Trésmiðju … Halda áfram að lesa Sökk í Hafnarfjarðarhöfn
Náttfari
993. Náttfari kemur úr hvalaskoðun í gær. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Í gær birtist hér á síðunni mynd af Náttfara láta úr höfn á Húsavík með ferðamenn í hvalaskoðun á Skjálfanda. Og nú birtist mynd af bátnum koma að landi úr þessari sömu ferð. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Náttfari
Maron dregur netin út af Straumsvík
363. Maron GK 522 ex Maron HU 522. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Jón Steinar flaug drónanum í gær út að Maroni GK 522 þar sem báturinn var að draga netin út af Straumsvík. Kallarnir virtust vera að fiska vel á þessum elsta stálbát flotans sem enn er í drift. Maron hét upphaflega Búðafell SU 90 … Halda áfram að lesa Maron dregur netin út af Straumsvík
Karine H VL-62-AV
IMO: 9252515. Karine H VL-62-AV ex Atlantic Enterprice. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Maggi Jóns tók þessar myndir af norska rækjutogaranum Karine H VL-62-AV í Hafnarfirði um helgina en hann hélt til veiða við Austur-Grænland. Togarinn var keyptur til Noregs í byrjun þessa árs en hann hét áður Atlantic Enterprice og var gerður út frá Kananda … Halda áfram að lesa Karine H VL-62-AV
Bjarnarey VE 501
1298. Bjarnarey VE 501. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bjarnarey VE 501 var smíðuð hjá Slippstöðinni á Akureyri og afhent eigendum sínum í aprílmánuði árið 1973. Báturinn, sem var 152 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Hraðfrystistöðina í Reykjavík en heimahöfn hans Vestmannaeyjar. Bjarnarey var síðar yfirbyggð og seinna sleginn út að aftan. Hún varð síðar í … Halda áfram að lesa Bjarnarey VE 501









