Líkan af 85. Harðbak EA 3. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2025. Þetta glæsilega líkan af síðutogaranum Harðbak EA 3 gerði Dalvíkingurinn Elvar Þór Antonsson og er það hið sjötta sem hann gerir af togurum ÚA. Það eru fyrrum sjómenn af ÚA togurunum sem hafa staðið fyrir gerð þessara líkana eins og lesa má um hér. Harðbakur … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 3
Flokkur: Togarar
Tómas Þorvaldsson GK 10
2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 kom til löndunar í Grindavík í vikunni og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Grindavík Seafod ehf sem er eitt af þremur fyrirtækjum sem varð til þegar Þorbirni hf í Grindavík var skipt upp eignast skipið í desember … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson GK 10
Bergey VE 44
2964. Bergey VE 44 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af Bergey VE 44 þar sem hún lónaði fyrir utan Grindavík í gærmorgun. Áhöfnin var að þrífa áður en komið var í land en aflinn hjá var fullfermi um 75 tonn. Uppistaðan var ýsa um 46 tonn, … Halda áfram að lesa Bergey VE 44
Norma Mary á Akureyri
IMO 8718885. Norma Mary A 883 ex 1976. Snæfugl SU 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggur frystitogarinn Norma Mary A 883 við bryggju um árið en upphaflega hét hann Snæfugl SU 20. Snæfugl smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Noregi fyrir Skipaklett hf. á Reyðarfirði. Togarinn kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Reyðarfirði … Halda áfram að lesa Norma Mary á Akureyri
Andey SF 222
1980. Andey Sf 222 ex Andey SU 210. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Andey SF 222 er hér á toginu um árið en upphaflega var Andey SU 210með heimahöfn á Breiðdalsvík. Um Andey sem smíðuð var í Póllandi árið 1989 má lesa hér en hún var seld til Færeyja árið 2008, þá var hún ÍS 440. Með … Halda áfram að lesa Andey SF 222
Lómur HF 177
1608. Lómur HF 177 ex Þór HF 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Lómur HF 177 leggur hér upp í veiðiferð frá Húsavík umn árið. Hefur sennilega verið að landa þar rækju. Lómur hét upphaflega Baldur EA 108 á íslenskri skipaskrá en þegar hann var keyptur til Dalvíkur 1981 af Upsaströnd hf. hét hann Glen Urquhart A-364 … Halda áfram að lesa Lómur HF 177
Jóhanna Gísladóttir GK 357
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jóhanna Gísladóttir GK 357 landaði fullfermi í Grindavík í gær eða 235 körum sem gera um 75 tonn. Uppistaðan var þorskur og karfi. Veitt var á Halamiðum. Jón Steinar tók þessar myndir sem sýna togarann koma til hafnar og leggja síðan upp … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir GK 357
Páll Pálsson ÍS 102
2904. Páll Pálsson ÍS 102. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Páll Pálsson ÍS 102 lætur hér úr höfn í Hafnarfirði á dögunum en hann það er Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf. sem gerir hann út. Sennilega var um prufusiglingu að ræða því hann kom inn aftur um kvöldið. Togarinn var smíðaður hjá Huanghai Shipbuilding Co Ltd … Halda áfram að lesa Páll Pálsson ÍS 102
Hrafn Sveinbjarnarson GK 255
1972. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 ex Snæfel EA 740. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í gærmorgun þegar Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 kom til löndunar í Grindavík. Togarinn var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1988 fyrir Hríseyinga en seldur til Grindavíkur síðla árs 1989. Það var Þorbjörn hf. sem keypti … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson GK 255
Hulda Björnsdóttir GK 11
3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af Huldu Björnsdóttur GK 11 í morgun þegar hún kom til löndunar í Grindavík. Aflinn var um 100 tonn. Uppistaðan þorskur, ýsa og karfi. Það er útgerðarfélagið Ganti ehf í Grindavík sem á og gerir togarann út en hann var … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11









