Skinney í slipp á Akureyri

2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skinney SF 20 frá Hornafirði er hér í slippnum á Akureyri í dag nýmáuð og fín. Skinney, var líkt og systurskipið Þórir SF 77 nú Birtingur NK 119,  smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan árið 2008 fyrir Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði. Þau … Halda áfram að lesa Skinney í slipp á Akureyri →

Vestmannaey VE 54

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Vestmannaey VE 54 kemur hér til hafnar í Grindavík í vikunni. Hún var með fullfermi, eða um 230 kör sem gera um 76 tonn. Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf. dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Nor­egi. 2954. Vestmannaey VE 54. … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 →

Gullberg VE 292

2747. Gullberg VE 292 ex Riba 1. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Gullberg VE 292 lætur hér úr höfn i Vestmannaeyjum um árið en Ufsaberg hf. keypti skipið þangað árið 2006. Gullbergið hafði Ufsaberg ehf. keypt í Ástralíu en til Vestmannaeyja kom skipið vorið 2007 frá Danmörku þar sem unnið var að gagngerum endurbótum og breytingum á … Halda áfram að lesa Gullberg VE 292 →

Björgúlfur EA 312

2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Samherjatogarinn Björgúlfur EA 312 kom til hafnar í Hafnarfirði nú síðdegis og lá ég fyrir honum þar. Björgúlfur var smíðaður í Tyrklandi árið 2017 og kom til heimahafnar á Dalvík 1. júní það ár. Björgúlfur er einn fjögurra togara sem smíðaður er eftir sömu teikningu fyrir íslenskar útgerðir í Cem­re-skipasmíðastöðinni. … Halda áfram að lesa Björgúlfur EA 312 →

Poseidon EA 303

1412. Poseidon EA 303 ex Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Hér liggur rannsóknarskipið Poseidon EA 303 við bryggju á Akureyri í aprílmánuði árið 2011. Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureyringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til … Halda áfram að lesa Poseidon EA 303 →

Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Það voru austsuaustan 12-13 metrar og rigningarsuddi í honum eins og ljósmyndarinn orðaði það þegar Vestmannaey VE 54 kom til hafnar í Grindavík í gærmorgun. Vestmannaey var með fullfermi í þessum túr og fer aflinn að mestu til vinnslu hjá Vísi í Grindavík. Vestmannaey er í eigu … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær →

Jóhanna Gísladóttir landaði í Grindavík í gær

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jóhanna Gísladóttir kom til löndunar í Grindavík snemma í gærmorgun og var aflinn um 240 kör sem gerir um það bil 76 tonn. Uppistaða aflans var þorskur, ýsa og steinbítur. Vísir keypti togarann frá Vestmannaeyjum árið 2021 þar sem hann bar nafnið … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir landaði í Grindavík í gær →

Vestmannaey á útleið frá Grindavík

2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir sl. sunnudag þegar Vestmannaey VE 54 hélt til veiða að lokinni löndun í Grindavík. Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Nor­egi. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. … Halda áfram að lesa Vestmannaey á útleið frá Grindavík →