Jóhanna Gísladóttir GK 357

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jón Steinar tók þessa myndasyrpu í dag þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 kom af Austfjarðarmiðum til Grindavíkur úr síðasta túr fyrir jól. Aflinn var um 180 kör sem gerir um 57 tonn og var uppistaðan í aflanum þorskur. Það voru austan 12 … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir GK 357 →

Árbakur EA 5

2154. Árbakur EA 5 ex Árbakur EA 308. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Árbakur EA 5 leggur hér upp í veiðiferð frá Akureyri um árið. Árbakur, sem áður hét Natsek, var smíðaður fyrir Grænlendinga árið 1980 hjá Örskov Christensens Staalskibsvært A/S, Frederikshavn í Danmörku, og var smíðanúmer 112 hjá stöðinni. Skipið var hannað af Nordvestconsult A/S og smíðað … Halda áfram að lesa Árbakur EA 5 →

Brimir ÞH 10

2155. Brimir ÞH 10 ex Sléttunúpur ÞH 273. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjutogarinn Brimir ÞH 10 kemur hér að landi á Húsavík um árið en hann var 34,75 metrar að lengd, smíðaður í Danmörku 1979. Togarinn var smíðaður fyrir Grænlendinga og hét upphaflega hét Nataarnaq og síðar Niisa. Árið 1991 var togarinn keyptur til Íslands og kom til Ísafjarðar á … Halda áfram að lesa Brimir ÞH 10 →

Höfrungur III AK 250

1902. Höfrungur III AK 250 ex Polarborg II. Ljósmynd Vigfús Markússon. Höfrungur III AK 250 var keyptur til Íslands frá Færeyjum og kom landsins í febrúar 1992. Höfrungur III hét áður Polarborg II og var það Haraldur Böðvarsson hf. á Akranesi sem keypti skipið. Togarinn var smíðaður árið 1988 hjá Sterkoder Mek. Verksted A/S í … Halda áfram að lesa Höfrungur III AK 250 →

Eyjarnar lönduðu í Grindavík í gær

2964. Bergey VE 44 - 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Systurnar Vestmannaey og Bergey komu til löndunar í Grindavík í bítið í gærmorgun. Þær voru kallaðar inn þar sem vantaði hráefni í vinnsluna hjá Vísi. Vestmannaey var með 101 kar sem gerir um 35 tonn uppistaðan þorskur og ýsa. Bergey var … Halda áfram að lesa Eyjarnar lönduðu í Grindavík í gær →

Þorleifur Jónsson HF 12

1121. Þorleifur Jónsson HF 12 ex Ársæll Sigurðsson HF 12. Ljósmynd Vigfús Markússon. Þorleifur Jónsson HF 12 hét upphaflega Milly Ekkenga SG 1 og var í eigu þýskrar útgerðar en fékk nafnið Dagný SI 70 þegar Togskip hf. á Siglufirði keypti togarann til landsins árið 1970.  Skipið var 385 brl. og smíðað í De Dageraadskipasmíðastöðinni í Woubrugge … Halda áfram að lesa Þorleifur Jónsson HF 12 →

Hulda Björnsdóttir á útleið

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Á dögunum birtust myndir af Huldu Björnsdóttur GK 11 koma að landi í Grindavík en þær sem núna birtast tók Jón Steinar þegar hún lét úr höfn nokkrum dögum síðar. Hulda Björnsdóttir GK 11 var smíðuð árið 2024 hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir á útleið →

Hulda Björnsdóttir GK 11

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í gær þegar ísfisktogararinn Hulda Björnsdóttir GK 11 kom til Grindavíkur í SSA 10-12 metravindi og rigningarsudda. Aflinn var um 145 tonn sem fékkst fyrir austan land. Hulda Björnsdóttir GK 11 var smíðuð árið 2024 hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 →