Snorri Sturluson RE 219

1328. Snorri Sturluson RE 219. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Snorri Sturluson RE 219 var einn sex stóru Spán­ar­tog­ar­anna sem komu til lands­ins á ár­un­um 1973-1975.  Þeir voru smíðaðir í Astilleros Luzuriaga S.A. skipasmíðastöðinni í Pasajes de San Juan í Baskalandi. Bæjarútgerð Reykjavíkur, BÚR, fékk þrjá þeirra. Auk Snorra þá Bjarna Benediktsson RE 210 og Ingólf Arnarson … Halda áfram að lesa Snorri Sturluson RE 219 →

Þuríður Halldórsdóttir GK 94

1645. Þuríður Halldórsdóttir GK 94 ex Hafnarey SU 110. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Skuttogarinn Þuríður Halldórsdóttir GK 94 heldur hér í veiðiferð frá Grindavík vorið 2006. Upphaflega hét skipið Hafnarey SU 110 frá Breiðdalsvík og var eitt af raðsmíðaskipunum svokölluðu. Smíðað 1983 hjá Þorgeir & Ellert á Akranesi. Valdimar hf. í Vogum á Vatnsleysuströnd keypti … Halda áfram að lesa Þuríður Halldórsdóttir GK 94 →

Komið að lokum hjá Múlaberginu

1281. Múlaberg SI 22 ex Múlaberg ÓF 32. LJósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Eins og fram kom í fréttum í gær eru dagar Múlabergs SI 22 senn taldir eftir að bil­un kom upp í skip­inu og ekki talið svara kostnaði að gera við þennan hálfraraldar gamla Japanstogara. Togarinn hét upphaflega Ólafur Bekkur ÓF 2, hann var … Halda áfram að lesa Komið að lokum hjá Múlaberginu →

Sólbakur EA 5

1212. Sólbakur EA 5 ex Bayard. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Togarinn Sólbakur EA 5 á toginu en hann var fyrsti skuttogari Útgerðarfélags Akureyringa h/f, kom til heimahafnar á Akureyri 8. febrúar 1972. Sólbakur var smíðaður í Gdynia í Póllandi fyrir franska útgerð og afhentur í árslok árið 1967. Hjá Frökkunum hét hann Bayard og heimahöfn … Halda áfram að lesa Sólbakur EA 5 →

Sléttbakur EA 304

1351. Sléttbakur EA 304 ex Stella Kristína. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sléttbakur EA 304 liggur hér fánum prýddur við brygggju á Akureyri og ef ég man rétt var þetta eftir að breytingum á honum lauk í Slippstöðinni árið 1987 Sléttbakur EA 304 hét áður Stella Kristína og var gerður út frá Færeyjum. Skipið var smíðað í … Halda áfram að lesa Sléttbakur EA 304 →

Kaldbakur EA 1

2981. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Kaldbakur EA 1, togari Útgerðarfélags Akureyringa, kom inn til löndunar í Hafnarfirði í gær og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Kaldbakur var  fyrstur í röðinni af fjór­um syst­ur­skip­um sem smíðuð voru hjá Cem­re-skipa­smíðastöðinni í Tyrklandi. Hin eru Björgúlfur EA 312, Drangey SK 2 og Björg EA 7. … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1 →