2966. Steinunn SF 10. Ljósmynd Margeir Guðmundsson 2024. Hér gefur að líta Steinunni SF 10 á siglingu til Þorlákshafnar smekkfulla af fiski eins og Sigurður Davíðsson orðaði það en hann sendi síðunni myndina. Margeir Guðmundsson skipstjóri á Þinganesi SF 25 tók myndina. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Steinunn SF 10 á landleið
Flokkur: Togarar
Hjalteyrin EA 306
1476. Hjalteyrin EA 306 ex Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Hjalteyrin EA 306 kemur hér að landi á Akureyri í ágústmánuði árið 2018. Upphaflega og lengst af hét togarinn Björgúlfur EA 312 frá Dalvík en vorið 2017 fékk hann nafnið Hjalteyrin EA 306. Þá hafði nýr Björgúlfur EA 312 leysti hann af hólmi. … Halda áfram að lesa Hjalteyrin EA 306
Flatey ÞH 383
1752. Flatey ÞH 383 ex Gissur ÞH 37. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Rækjutogarinn Flatey ÞH 383 er hér að fara til veiða þann 6. ágúst árið 2004 og gott ef Mærudagarnari voru ekki að bresta á. Flatey var í eigu Íshafs árin 2003 til 2005 en var þá seld til Vestmannaeyja þar sem hún fékk … Halda áfram að lesa Flatey ÞH 383
Árbakur EA 5
2154. Árbakur EA 5 ex Árbakur EA 308. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. ÚA togarinn Árbakur EA 5 leggur hér upp í veiðiferð frá Akureyri um árið en þetta var sama daginn og Þorsteinn EA 810 kom úr lengingu frá Póllandi. Árbakur, sem áður hét Natsek, var smíðaður fyrir Grænlendinga árið 1980 hjá Örskov Christensens Staalskibsvært A/S, … Halda áfram að lesa Árbakur EA 5
Julíus Havsteen ÞH 1
2262. Júlíus Havsteen ÞH 1 ex Quaasiut II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson Frystitogarinn Júlíus Havsteen ÞH 1 kemur hér til hafnar á Húsavík eftir veiðferð á rækjuslóð. Útgerðarfélagið Höfði á Húsavík keypti togarann frá Grænlandi árið 1995 og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar í janúarmánuði árið 1996. Togarinn hét upphaflega Quaasiut II og var smíðaður … Halda áfram að lesa Julíus Havsteen ÞH 1
Oddeyrin og Víðir
1376. Víðir EA 910 - 2750. Oddeyrin EA 210. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Þessi mynd var tekin þegar Oddeyrin EA 210 kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri í febrúarmánuði árið 2007. Samherji keypti togarann frá Noregi þar sem hann bar nafnið Andenesfisk II. Hann var smíðaður á Spáni árið 2000. Oddeyrin lagðist að … Halda áfram að lesa Oddeyrin og Víðir
Heiðrún ÍS 4
1506. Heiðrún ÍS 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Heiðrún ÍS liggur hér í Reykjavíkurhöfn um árið og aftan við hana má sjá Bjarma frá Tálknafirði. Heiðrún, sem var 294 brl. að stærð, var smíðuð árið 1978 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar h/f á Ísafirði fyrir Völustein h/f í Bolungarvík. Togarinn var búinn 1450 hestafla Alpha aðalvél. … Halda áfram að lesa Heiðrún ÍS 4
Hrafn GK 111
1628. Hrafn GK 111 ex Sléttanes ÍS 808. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Frystitogarinn Hrafn GK 111 kemur hér til hafnar í Hafnarfirði þann 29. febrúar árið 2004. Hrafn hét upphaflega Sléttanes ÍS 808 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Fáfni hf. á Þingeyri. Smíðaár 1983 og stærð þess 472 brúttórúmlestir. Sléttanesinu var breytt … Halda áfram að lesa Hrafn GK 111
Spánartogarar ÚA
1395. Kaldbakur EA 1 og 1412. Harðabakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Hér liggja Spánartogararnir Kaldbakur EA 1 og Harðbakur EA 3 (fjær) við ÚA bryggjuna á Akureyri í aprílmánuði árið 2007. Þeir voru smíðaðir fyrir ÚA í Astilleros Luzuriaga S.A. skipasmíðastöðinni í Pasajes de San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni. Kaldbakur … Halda áfram að lesa Spánartogarar ÚA
Framnes ÍS 708
1327. Framnes ÍS 708 ex Framnes 1 ÍS 708. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Framnes ÍS 708 liggur hér nýskveraður og fínn við slippkantinn á Akureyri en hann var smíðaður í Flekkefjørd í Norei árið 1973. Á miða Hauks Sigtryggs segir: 1327....Framnes I. ÍS 708... TF-OH. IMO: 7325485. MMSI: 251220110. Skipasmíðastöð: Flekkefjord Slipp & Mask.Fabr. A/S.Flekkefjord. … Halda áfram að lesa Framnes ÍS 708









