1937. Björgvin EA 311. Ljósmynd Haukur Sigtryggur Valdimarsson 2024. Börgvin EA 311 sigldi frá Dalvík í hinsta skipti dag en togarinn hefur, eins og áður hefur komið fram, verið seldur úr landi. Haukur Sigtryggur tók meðfylgjandi myndir í dag en þeir Hartmann Kristjánsson og Leifur Björnsson fyrrverandi skipverjar á Björgvin leystu landfestar hans. Ljósmyndir Haukur … Halda áfram að lesa Björgvin EA 311 lagður af stað til Spánar
Flokkur: Togarar
Ásgeir RE 60 á toginu
1505. Ásgeir RE 60. Ljósmynd Sigtryggur Georgsson. Ísbjarnartogarinn Ásgeir RE 60 er á toginu á þessari mynd en hann var smíðaður fyrir Ísbjörninn hf. í Flekkefjørd í Noregi árið 1977. Hann kom til heimahafnar 22. desember en systurskip hans Ásbjörn RE 50 kom síðan 28. mars 1978. Ásgeir og Ásbjörn mældust 442 brl. að stærð, … Halda áfram að lesa Ásgeir RE 60 á toginu
Björgvin EA 311 seldur úr landi
1937. Björgvin EA 311. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Samherji hefur selt ísfisktogarann Björgvin EA 311 og verður skipið afhent kaupanda í júní. Í tilkynningu segir að Björgvin EA sé elsta skipið í flota Samherja, smíðað í Noregi árið 1988 og hafi alla tíð reynst mjög vel. Áhöfnin hefur umgengist skipið á sérstaklega vandaðan hátt og … Halda áfram að lesa Björgvin EA 311 seldur úr landi
Stefnir ÍS 28 seldur til Grænhöfðaeyja
1451. Stefnir ÍS 28 ex Gyllir ÍS 261. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Skuttogarinn Stefnir ÍS 28 hefur verið seldur til Cabo Verde og lýkur þar með nær hálfrar aldar vestfirskri útgerð skipsins. Frá þessi segir í Bæjarins besta. Þar segir jafnframt að fulltrúar kaupenda séu komnir til Ísafjarðar og vinna við að gera skipið klárt … Halda áfram að lesa Stefnir ÍS 28 seldur til Grænhöfðaeyja
Kleifaberg og Mánaberg
1360. Kleifaberg ÓF 2 - 1270. Mánaberg ÓF 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Hér gefur að líta frystitogarana Kleifaberg ÓF 2 og Mánaberg ÓF 42 við bryggju á Ólafsfirði. Myndin var tekin þann 3. júní árið 2005 og Sjómannadagshelgin framundan. Kleifabergið hét upphaflega Engey RE 1 og var smíðað fyrir Ísfell hf. í Póllandi árið … Halda áfram að lesa Kleifaberg og Mánaberg
Sólberg ÓF 1 kom í Krossanes
2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 kom að landi í Krossanesi í dag en hann fer yfirleitt þangað í lok veiðiferðar til olíutöku áður en haldið er til Siglafjarðar og landað. Sólberg ÓF 1 kom nýr til landsins í maí mánuði árið 2017 en hann var smíðaður fyrir Ramma … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF 1 kom í Krossanes
Pálína Þórunn GK 49
2449. Pálína Þórunn GK 49 ex Steinunn SF 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Togskipið Pálína Þórunn GK kom að landi í Sandgerði í morgun og ekki annað að sjá en að vel hafi fiskast. Pálína Þórunn GK 49 hét áður Steinunn SF 10 en Nesfiskur hf. keypti hana af Skinney-Þinganesi hf. árið 2019. Pálína Þórunn … Halda áfram að lesa Pálína Þórunn GK 49
Viðey RE 50
2895. Viðey RE 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skuttogarinn Viðey RE 50 kom til hafnar í Reykjavík í gærkveldi og voru þessar myndir teknar þá. Brim hf. í Reykjavík gerir togarann út en hann er eitt þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Céliktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul. Hin voru Engey RE 91 og Akurey … Halda áfram að lesa Viðey RE 50
Baldvin Njálsson GK 400
2992. Baldvin Njálsson GK 400. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 kom til olíutöku í Örfirisey í kvöld og voru þessar myndir teknar þá. Baldvin Njálsson GK 400 var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon Vigo S.A í Vigo og kom í stað eldra skips sem selt var til Rússlands. Hann kom til landsins í … Halda áfram að lesa Baldvin Njálsson GK 400
Bjarni Ásmundar RE 12
978. Bjarni Ásmundar RE 12 ex Bjarni Ásmundar ÞH 320. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Bjarni Ásmundar RE 12 á toginu en það var Bás hf. í Reykjavík sem gerði hann út. Upphaflega Siglfirðingur SI 150 sem smíðaður var fyrir Siglfirðing hf. á Siglufirði árið 1964 í Ulsteinsvik í Noregi. Tímamótaskip en hann var fysrta íslenska … Halda áfram að lesa Bjarni Ásmundar RE 12









