Sólberg ÓF 1 kom í Krossanes

2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 kom að landi í Krossanesi í dag en hann fer yfirleitt þangað í lok veiðiferðar til olíutöku áður en haldið er til Siglafjarðar og landað.

 Sólberg ÓF 1 kom nýr til landsins í maí mánuði árið 2017 en hann var smíðaður fyrir Ramma hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi.  

Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar að lengd, 15,4 metrar á breidd og alls 3.720 brúttótonn að stærð.

Það er Ísfélagið hf. sem gerir Sólbergið út eftir sameiningu þess við Rammann hf. í Fjallabyggð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd