1412. Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til heimahafnar á Akureyri þann 26. mars árið 1975. Útgerðarfélag Akureyringa h/f. fékk einnig næst síðasta skuttogarann sem smíðaður var … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 303
Flokkur: Togarar
Sigluvík SI 2
1349. Sigluvík Si 2. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Sigluvík SI 2 sést hér á toginu um árið en hún var einn Spánartogaranna af minni gerðinni og alla tíð gerð út frá Siglufirði. Togarinn var smíðaður fyrir Þormóð ramma h.f. á Siglufirði kom til landsins þann 7. apríl 1974. Hann var smíðaður hjá Astiller skipasmíðastöðinni í Huelva … Halda áfram að lesa Sigluvík SI 2
Húsvíkingur ÞH 1
2216. Húsvíkingur ÞH 1 ex Pétur Jónsson RE 69. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1997. Hér liggur Húsvíkingur ÞH 1 við Norðurgarðinn í Húsavíkurhöfn og var þetta í fyrsta skiptið af örfáum sem hann kom í heimahöfn. Húsvíkingur hét upphaflega Pétur Jónsson RE 69 og var smíðaður árið 1994 fyrir Pétur Stefánsson skipstjóra og útgerðarmann. Smíðin fór … Halda áfram að lesa Húsvíkingur ÞH 1
Höfðavík AK 200
1508. Höfðavík AK 200 ex Óskar Magnússon AK 177. ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Höfðavík AK 200 hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 og var smíðað sem nóta- og togveiðiskip í Slippstöðinni á Akureyri árið 1978. Árið 1984 fékk skipið nafnið Höfðavík AK 200 sem það bar þar til Langanes ehf. á Húsavík keypti það 1996 og … Halda áfram að lesa Höfðavík AK 200
Eyvindur Vopni NS 70
1629. Eyvindur Vopni NS 70. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1983. Eyvindur Vopni NS 70 er hér við bryggju á Vopnafirði haustið 1986 en myndina tók Hreiðar Olgeirsson. var smíðaður 1983 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar h/f fyrir Kolbeinstanga h/f á Vopnafirði. Í 9 tbl. Ægis 1983 var lýsing á Eyvindi Vopna NS 70 og sagði m.a: 19. apríl … Halda áfram að lesa Eyvindur Vopni NS 70
Birtingur NK 119
2731. Birtingur NK 119 ex Þórir SF 77. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2024. Haukur Sigtryggur tók þessa mynd fyrir jól af togskipinu Birtingi NK 119 við bryggju á Dalvík. Samherji er að gera hann út en eins og kom fram á síðunni keypti Síldarvinnslan Birting, sem áður hét Þórir SF 77, af Skinney-Þinganesi sl. haust. Með … Halda áfram að lesa Birtingur NK 119
Frosti ÞH 229
2067. Frosti ÞH 229 ex Jóhann Gíslason ÁR 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin þegar Frosti ÞH 229 var í prufusiglingu eftir breytingar í Slippstöðinni á Akureyri. Frosti hét upphaflega Jóhann Gíslason ÁR 42 og var smíðaður í Póllandi árið 1990. Frosti ehf. keypti hann árið 1995 og nefndi Frosta ÞH 229. Frosti … Halda áfram að lesa Frosti ÞH 229
Sigurbjörg VE 67
3018. Sigurbjörg VE 67 ex Sigurbjörg ÁR 67. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Sigurbjörg ÁR 67 hefur nú fengið einkennisstafina VE og heimahöfn í Vestmannaeyjum. Það er Ísfélagið hf. sem gerir togarann út en hann kom til landsins í lok júlímánaðar á þessu ári. Sigurbjörgin var smíðuð í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul í Tyrklandi og er … Halda áfram að lesa Sigurbjörg VE 67
Harðbakur
2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Harðbakur EA 3 með jólaseríuna uppi þar sem hann liggur í Fiskihöfninni á Akureyri. Harðbakur kom nýr til heimahafnar á Akureyri í nóvember 2019 en hann var smíðaður hjá Vardskipasmíðastöðinni í Noregi, Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Harðbakur
Sturla seld til Grundarfjarðar
2444. Sturla GK 12 ex ex Smáey VE 444. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Fram kemur á vef Skessuhorns í dag að fiskvinnslufyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði hafi fest kaup á Sturlu GK 12. Þar segir jafnframt Sturla, sem mun leysa Hring SH 153 af hólmi, farir í slipp eftir helgina og eru kaupin gerð með … Halda áfram að lesa Sturla seld til Grundarfjarðar









